Mundi og Svanhildur

Jákvæð reynslusaga úr Kerfinu
Hálsbólgan sem ég er búin að vera með síðustu tvo daga varð öllu verri í nótt og í morgun var ég komin með hita og leið frekar ömurlega. Drattaðist á lappir til að gefa Elínu Margréti að borða og hugsaði með mér hvað ég væri óheppin að vera veik og Mundi í burtu alla helgina. Hugsaði svo hvað það yrði hræðilegt ef ég myndi smita Elínu Margréti og hún yrði veik á meðan ég væri í París. Hlyti að vera hræðileg lífsreynsla fyrir hana að vera veik án þess að ég væri til staðar fyrir hana og þá þyrfti Mundi að taka sér frí úr vinnunni og þetta yrði bara vesen.

Fattaði allt í einu í þessum hugleiðingum, að það væri kannski gott að athuga hvort vegabréfið væri ekki örugglega á sínum stað og hvort það væri ekki ábyggilega enn í gildi, rámaði eitthvað í að síðast þegar ég fór út hafi ekki verið langur gildistími eftir. Vegabréfið var á sínum stað en úbbs, það rann út í ágúst. Ég panikkaði, fór á síðu sýslumanns til að hafa samband, fann símanúmerið og hringdi en fékk ekkert svar þar sem það er bara svarað í símann á milli kl. 8:30 og 11 og klukkan var 11:10. Ég panikkaði enn meira, fann til alla peninga sem voru í íbúðinni því ég mundi að það er ekki hægt að borga með kreditkori og ég á ekki debetkort, var að lokum komin með 20.000 kall í veskið og ákvað að það hlyti að duga fyrir flýtimeðferð, ef það væri þá hægt að fá svona svakalega flýtimeðferð, en í dag er föstudagur og ég er að fara til Parísar eldsnemma á mánudagsmorgun.

Ég skellti í mig einni paratabs, húfu á Elínu Margréti, og svo brunaði í ég í Kópavoginn. Hugsaði á leiðinni hvað það yrði ljót mynd af mér í nýja vegabréfinu þar sem ég var veik og ómáluð og voða drusluleg en allt sem skipti máli var að komast sem fyrst til sýslumannsins og láta voða aumkunarlega svo að ég fengi nú vegabréfið seinna í dag. Hugsaði líka um hvað þetta yrði ábyggilega dýrt, hafði heyrt um einhvern sem þurfti vegabréf með flýtimeðferð og það var víst voða dýrt, en ég ákvað að vera ekkert að sjá of mikið á eftir peningnum, Ríkissjóður þyrfti á þessu að halda núna. Svo pældi ég aðeins í hvað hefði eiginlega komið fyrir heilann á mér þegar ég eignaðist þetta blessaða barn. Það er svo svakalega ólíkt mér að klúðra einhverju svona, er venjulega búin að gera allt svona mjög tímanlega. En nú hafði ég bara ekkert hugsað út í þetta fyrr en núna.

Sem betur fer var lítil umferð og ég komst því fljótt og örugglega til sýslumannsins í Kópavogi, tók miða og beið eftir að röðin kæmi að mér. Ég þurfti ekki að bíða lengi og þegar kom að mér rétti ég konunni vegabréfið mitt og útskýrði vandamál mitt. Hún tók vegabréfið og fór með það á bakvið, kom svo og sagði að ég þyrfti að bíða í nokkrar mínútur. Þremur mínútum síðar kom önnur kona fram með vegabréfið mitt og rétti mér það og sagði "gjörðu svo val, það er búið að framlengja gildistímann um eitt ár". "Vá æðislegt" sagði ég "Takk fyrir, þarf ég ekki að borga  fyrir þetta?" "Nei" sagði konan "Þetta kostar ekkert"

Vá, þvílíkur léttir, ég var búin að vera í stresskasti síðasta hálftímann, alveg búin að búa mig undir að þetta yrði þvílíkt vesen og myndi auk þess kosta marga peninga. Það sem ég varð glöð og þakklát fyrir að búa við svona gott kerfi, alla vega hvað þetta varðar.

Mig langaði bara að koma þessu á framfæri nú þegar allir er kvartandi og kveinandi yfir því sem betur má fara. Auðvitað er ég oftast sammála þessu kvarti, það er svo margt sem hægt er að gera betur, en maður má ekki gleyma að vera þakklátur fyrir það sem er gott og það er svo leiðinlegt þegar fólk kvartar bara þegar það er óánægt en finnst svo alltaf bara sjálfsagt þegar eitthvað er gott. Þannig að ég vildi koma fram þökkum fyrir þetta sem gladdi mig og gerði daginn minn svo miklu betri en ég var búin að sjá hann fyrir mér, held meira að segja að mér líði aðeins betur í hálsinum bara :-)

Ferðasumarið mikla
Elín Margrét er búin að gera víðreist á sínu fyrsta ári.  Að Danmerkurferð lokinni er hún búin að fara Strandir alveg norður í Ófeigsfjörð, og Steinadalsheiði til baka, búin að fara á ættarmót í Eyjafirði, fara bæði Kjöl og Sprengisand, um Mælifellsdal ofan í Skagafjörð, Lágheiði til Ólafsfjarðar, fara í fiskisúpu á Dalvík, og skoða hvali á Húsavík.  Brölta um Þeistareyki og Gjástykki, skoða Aldeyjarfoss, Hrafnabjargarfossa og Fagrafoss og fleira og fleira.  Við vorum svo heppin að fá að fara með henni um þessar slóðir.  Í fyrramálið held ég svo til fjalla á ný með frakkana í síðustu ferð þessa sumars, ætla að vera í tjaldi í svona 2 vikur í viðbót, en þær mæðgur verða eftir þetta sinnið enda menningarnótt og ýmislegt fleira framundan...

Myndin hér að ofan er tekin einn góðviðrisdaginn með skálann á Þeistareykjum í baksýn.

Frá Danmerkurferð
Við vorum í Danmörku á dögunum.  Þangað gerðum við fína ferð, náðum að gera margt okkur til skemmtunar, fórum í Ljónagarðinn, Legoland og svo í nýja vatnsleikjagarðinn í Billund sem heitir Lalandia.  Þetta var allt snilld, sem og hjólhýsaferðalag til Silkeborgar og sigling þar um vatnið.

Þegar við vorum ekki að skemmta okkur eða borða góðan mat í foreldrahúsum eða á veitingastöðum, þá málaði ég húsið hjá þeim utan og stelpurnar nutu lífsins í garðinum þegar viðraði.  Eins og sjá má á annarri af meðfylgjandi myndum fannst Elínu Margréti alveg stórfínt að sóla sig.  Hin myndin er af því þegar hún var böðuð í plastkassa í fortjaldi hjólhýsisins um Hvítasunnuna. Alveg stórfín ferð sem við áttum og nú búa foreldrar mínir í "hvíta húsinu"

Í dag kláraði ég svo minn síðasta dag í bili í Hagaskóla, ég mæti aftur til vinnu þar í haust en fram að því ætla ég að teyma franska ferðamenn um byggðir landsins, þó meira um óbyggðir.

Hér kemur ein sem var tekin eftir að við feðginin skelltum okkur í kröfugöngu á 1.maí.

Ungbarnasund
Hér kemur ein vikugömul mynd af nýjasta sundkappanum...

Elín Margrét er langsætust í nýja dressinu frá Maggý frænku.

1.apríl
Í dag fór Elín Margrét í sína fyrstu bakpokaferð.  Í henni var hún farþegi í þar til gerðum bakpoka!  Eftir dálitla göngu á Þingvöllum (afar þjóðlegt að byrja ferilinn þar) fór hún svo til ömmu og afa í Lækjarhjalla þar sem þessi mynd var tekin.

Á morgun ætlum við svo að reyna að skoða eldgosið, þá fær hún að fara með inn í Þórsmörk, en verður að láta sér það nægja þetta skiptið.  Annað hvort mun Ella amma eða ég gæta hennar þar meðan aðrir ættingjar og vinir ætla að reyna að sjá herlegheitin í návígi

Rétt áðan
Elín Margrét var í banastuði áðan...

....enda alveg að koma helgi!

Vífilsfell næsta sunnudag
Ég var kannski heldur bjartsýn að ætla í útilegu næstu helgi en það var bara svo mikið vor í lofti í febrúar en svo kom allt í einu veturinn í mars. En nú er hins vegar aftur farið að hlýna og væri svo sem alveg hægt að fara í útilegu næstu helgi ef ekki væri fyrir rigninguna sem spáð er og það er einnig mikil bleyta í jörðinni. Svo að útilegunni verður frestað um óákveðinn tíma eða þangað til við fáum góða helgarspá, þá skellum við okkur bara í'ann.

En við förum þá á Vífilsfell næsta sunnudag (14. mars) og ég held það sé bara ágætt að hittast á bílaplaninu við Olís við Rauðvatn kl. 11:50 og keyra samferða þaðan.

Ef við fáum ekki útileguveður helgina 20.-21. mars þá förum við á Stóra Meitil og Litla Meitil í Þrengslunum þann 28. mars og náum þannig tveimur tindum þann daginn. Það er alveg 3ja-4ja tíma ganga en þeir sem vilja geta bara látið Stóra Meitil nægja

Grímannsfell næsta sunnudag
Næsta sunnudag munum við ganga á Grímannsfell í Mosfellsdal. Ég hafði hugsað mér að byrja gönguna við Gljúfrastein og byrja á að labba upp með Köldukvísl eins og sagt er frá hér

Ef hins vegar veðrið er leiðnlegt þá munum við bara fara stystu leið upp eins og lýst er í bókinni Íslensk fjöll - gönguleiðir á 151 tind (sjá bls. 74) en þá er ekki ekið alveg að Gljúfrasteini heldur beygt til hægri nálægt Hraðastöðum og ekinn ca kílómeter inn þann veg í átt að fjallinu.  Ég legg því til að við hittumst bara kl. 12:00 á bílastæðinu undir Helgafelli og ákveðum hvora leiðina við veljum.

Í fyrradag
...var þessi mynd tekin, rétt áður en barnið fór í balann.

Lambafell á sunnudaginn
Gangan á Húsfell síðasta sunnudag var alveg frábær þrátt fyrir smá vesen á leiðinni í Kaldársel. Nú er stefnan tekin á Lambafell í Þrengslum, en það er annað fjall sem ég hef aldrei gengið á.

Lambafell (546 m.y.s.) er fjallið á hægri hönd þegar maður beygir inn í Þrengslin og þar er stórt malarnám. Farið er framhjá afleggjaranum inn í malarnámið og aðeins innar í Þrengslin. Þar, utan í Lambafellinu, er öllu minna malarnám og þar er sveigt út af veginum til hægri og ekið áleiðs að malarnáminu. En til að enginn villist þá ætlum við að hittast kl. 11:45 á planinu við bensínstöðina við Rauðavatn og keyra svo samferða þaðan og ættum því að geta verið að leggja af stað á fjallið kl. 12:00

Þessi ganga ætti að taka rúma tvo tíma og það er ekki skýr göngustígur og byrjað að ganga í hrauni og mosa og því betra aö vera ágætlega skóaður.

Sjáumst á sunnudaginn

Húsfell á morgun, sunnudag. Brottför kl 12:00 frá bílastæðinu rétt áður en maður kemur að Kaldárseli

Síðan í gær
Hér fáið þið að sjá eina mynd af dömunni okkar síðan í gær.

Annars allt við það sama af suðvesturvígstöðvum