Sunnudagur 15. ágúst

Ferðasumarið mikla

tn_DSC03932.JPG


Elín Margrét er búin að gera víðreist á sínu fyrsta ári. Að Danmerkurferð lokinni er hún búin að fara Strandir alveg norður í Ófeigsfjörð, og Steinadalsheiði til baka, búin að fara á ættarmót í Eyjafirði, fara bæði Kjöl og Sprengisand, um Mælifellsdal ofan í Skagafjörð, Lágheiði til Ólafsfjarðar, fara í fiskisúpu á Dalvík, og skoða hvali á Húsavík. Brölta um Þeistareyki og Gjástykki, skoða Aldeyjarfoss, Hrafnabjargarfossa og Fagrafoss og fleira og fleira. Við vorum svo heppin að fá að fara með henni um þessar slóðir. Í fyrramálið held ég svo til fjalla á ný með frakkana í síðustu ferð þessa sumars, ætla að vera í tjaldi í svona 2 vikur í viðbót, en þær mæðgur verða eftir þetta sinnið enda menningarnótt og ýmislegt fleira framundan...


Myndin hér að ofan er tekin einn góðviðrisdaginn með skálann á Þeistareykjum í baksýn.

- mundi | 19:32
Umræður

Ella:

o hún er svo sæt, alveg eins og mamma sín, annars er hún líka lík pabba sínum stundum :-)
Knús á ykkur öll

(17.08.10 22:02)

Svanhildur:

Hehe, takk mamma.

(18.08.10 11:10)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Fólkið
daia
baddý
hanna
torfi og eva
óli helgi
ásdís
jón gunnar
sísý mall
fanney
raf-magni
bogga
heiða
sara
ástrós
baldur
björk
jói ben
snæbó
daníel skíði
aurelie
berglind
halldóra
hlalla
jói
Solla og Gummi
bjarni og bryndís
gönguvefurinn
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni