Föstudagur 4. júní

Frá Danmerkurferð

tn_IMG_5069.jpg


Við vorum í Danmörku á dögunum. Þangað gerðum við fína ferð, náðum að gera margt okkur til skemmtunar, fórum í Ljónagarðinn, Legoland og svo í nýja vatnsleikjagarðinn í Billund sem heitir Lalandia. Þetta var allt snilld, sem og hjólhýsaferðalag til Silkeborgar og sigling þar um vatnið.


Þegar við vorum ekki að skemmta okkur eða borða góðan mat í foreldrahúsum eða á veitingastöðum, þá málaði ég húsið hjá þeim utan og stelpurnar nutu lífsins í garðinum þegar viðraði. Eins og sjá má á annarri af meðfylgjandi myndum fannst Elínu Margréti alveg stórfínt að sóla sig. Hin myndin er af því þegar hún var böðuð í plastkassa í fortjaldi hjólhýsisins um Hvítasunnuna. Alveg stórfín ferð sem við áttum og nú búa foreldrar mínir í "hvíta húsinu"


Í dag kláraði ég svo minn síðasta dag í bili í Hagaskóla, ég mæti aftur til vinnu þar í haust en fram að því ætla ég að teyma franska ferðamenn um byggðir landsins, þó meira um óbyggðir.

- mundi | 23:54
Umræður

Ásdís Jóh:

Fínt frí og fín Elín! Líst líka vel á sumarplönin :)

(07.06.10 14:59)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Fólkið
daia
baddý
hanna
torfi og eva
óli helgi
ásdís
jón gunnar
sísý mall
fanney
raf-magni
bogga
heiða
sara
ástrós
baldur
björk
jói ben
snæbó
daníel skíði
aurelie
berglind
halldóra
hlalla
jói
Solla og Gummi
bjarni og bryndís
gönguvefurinn
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni