1.apríl

Í dag fór Elín Margrét í sína fyrstu bakpokaferð. Í henni var hún farþegi í þar til gerðum bakpoka! Eftir dálitla göngu á Þingvöllum (afar þjóðlegt að byrja ferilinn þar) fór hún svo til ömmu og afa í Lækjarhjalla þar sem þessi mynd var tekin.
Á morgun ætlum við svo að reyna að skoða eldgosið, þá fær hún að fara með inn í Þórsmörk, en verður að láta sér það nægja þetta skiptið. Annað hvort mun Ella amma eða ég gæta hennar þar meðan aðrir ættingjar og vinir ætla að reyna að sjá herlegheitin í návígi
Maggý:
Sú hefur stækkað og mannast ég held hún fari bara að passa í fína dressið.
(02.04.10 17:14)
Svanhildur:
Já er það ekki Maggý? Ég er svo spennt að sjá fína dressið fullbúið. Allir að segja mér hvað það sé æðislegt.
(04.04.10 10:57)
Maggý:
Kem með það á laugardaginn.
(04.04.10 14:10)
Ásdís Jóh:
Hún er farin að líkjast pabba sínum ansi mikið :)
(06.04.10 13:44)
Mundi:
enda er hún falleg.... :)
(06.04.10 16:58)