Ungbarnasund

Hér kemur ein vikugömul mynd af nýjasta sundkappanum...

Elín Margrét er langsætust í nýja dressinu frá Maggý frænku.
-Svanhildur
| 19:12
| Comments (5)
1.apríl

Í dag fór Elín Margrét í sína fyrstu bakpokaferð. Í henni var hún farþegi í þar til gerðum bakpoka! Eftir dálitla göngu á Þingvöllum (afar þjóðlegt að byrja ferilinn þar) fór hún svo til ömmu og afa í Lækjarhjalla þar sem þessi mynd var tekin.
Á morgun ætlum við svo að reyna að skoða eldgosið, þá fær hún að fara með inn í Þórsmörk, en verður að láta sér það nægja þetta skiptið. Annað hvort mun Ella amma eða ég gæta hennar þar meðan aðrir ættingjar og vinir ætla að reyna að sjá herlegheitin í návígi