mars 11, 2010

Rétt áðan

tn_DSC02912.JPG

Elín Margrét var í banastuði áðan...

....enda alveg að koma helgi!

-mundi | 17:06 | Comments (5)

Vífilsfell næsta sunnudag

Ég var kannski heldur bjartsýn að ætla í útilegu næstu helgi en það var bara svo mikið vor í lofti í febrúar en svo kom allt í einu veturinn í mars. En nú er hins vegar aftur farið að hlýna og væri svo sem alveg hægt að fara í útilegu næstu helgi ef ekki væri fyrir rigninguna sem spáð er og það er einnig mikil bleyta í jörðinni. Svo að útilegunni verður frestað um óákveðinn tíma eða þangað til við fáum góða helgarspá, þá skellum við okkur bara í'ann.


En við förum þá á Vífilsfell næsta sunnudag (14. mars) og ég held það sé bara ágætt að hittast á bílaplaninu við Olís við Rauðvatn kl. 11:50 og keyra samferða þaðan.


Ef við fáum ekki útileguveður helgina 20.-21. mars þá förum við á Stóra Meitil og Litla Meitil í Þrengslunum þann 28. mars og náum þannig tveimur tindum þann daginn. Það er alveg 3ja-4ja tíma ganga en þeir sem vilja geta bara látið Stóra Meitil nægja

-Svanhildur | 11:56 | Comments (0)





Hafðu samband