Mánudagur 8. febrúar

Uppfært gönguplan

Sunnudagsgöngurnar hafa heldur betur verið að slá í gegn og fjölgar sífellt í gönguhópnum. Hér fyrir neðan má sjá planið fyrir næsta mánuðinn en eins og venjulega þá getur planið tekið breytingum.


14. febrúar: Húsfell í Hafnarfirði (sjá lýsingu bls. 130 í Íslensk fjöll) brottför kl. 11 eða 12 :00 frá bílastæðinu sem er aðeins áður en maður kemur að Kaldárseli. Nákvæmur tími verður tilkynntur síðar en það gæti verið að við Mundi þyrftum að flýta ferðinni um klukkutíma út af pössun Elínar Margrétar.


21. febrúar: Lambafell í Þrengslum : (sjá lýsingu bls. 186 í Íslensk fjöll) brottför kl. 12 :00 frá malarnáminu í Þrengslum, hisst kl. 11:45 á planinu við bensínstöðina við Rauðavatn


28. febrúar: Grímannsfell í Mosfellssveit (sjá lýsingu bls. 74 í Íslensk fjöll) brottför kl. 12 frá Gljúfrasteini


7. mars: Geitafell í Þrengslum (sjá lýsingu bls. 66 í Íslensk fjöll) brottför kl. 12, hisst kl. 11:45 á planinu við bensínstöðina við Rauðavatn


13.-14. mars: Útilega á Reykjanesi og gengið á Grænudyngju, Trölladyngju og Keili og jafnvel líka Sveifluháls. (sjá lýsingu bls. 284 og 156 í Íslensk fjöll) Ef spáin er slæm verður þessari útilegu frestað um eina helgi og gengið á Vífilsfell í staðinn.


21. mars: Vífilsfell (sjá lýsingu bls. 300 í Íslensk fjöll) brottför kl. 12, hisst kl. 11:50 á planinu við bensínstöðina við Rauðavatn

- Svanhildur | 13:04
Umræður

Umræður




Remember Me?





Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Fólkið
daia
baddý
hanna
torfi og eva
óli helgi
ásdís
jón gunnar
sísý mall
fanney
raf-magni
bogga
heiða
sara
ástrós
baldur
björk
jói ben
snæbó
daníel skíði
aurelie
berglind
halldóra
hlalla
jói
Solla og Gummi
bjarni og bryndís
gönguvefurinn
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni