Miðvikudagur 17. febrúar

Lambafell á sunnudaginn

Gangan á Húsfell síðasta sunnudag var alveg frábær þrátt fyrir smá vesen á leiðinni í Kaldársel. Nú er stefnan tekin á Lambafell í Þrengslum, en það er annað fjall sem ég hef aldrei gengið á.


Lambafell (546 m.y.s.) er fjallið á hægri hönd þegar maður beygir inn í Þrengslin og þar er stórt malarnám. Farið er framhjá afleggjaranum inn í malarnámið og aðeins innar í Þrengslin. Þar, utan í Lambafellinu, er öllu minna malarnám og þar er sveigt út af veginum til hægri og ekið áleiðs að malarnáminu. En til að enginn villist þá ætlum við að hittast kl. 11:45 á planinu við bensínstöðina við Rauðavatn og keyra svo samferða þaðan og ættum því að geta verið að leggja af stað á fjallið kl. 12:00


Þessi ganga ætti að taka rúma tvo tíma og það er ekki skýr göngustígur og byrjað að ganga í hrauni og mosa og því betra aö vera ágætlega skóaður.


Sjáumst á sunnudaginn

- Svanhildur | 14:10
Umræður

Umræður




Remember Me?





Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Fólkið
daia
baddý
hanna
torfi og eva
óli helgi
ásdís
jón gunnar
sísý mall
fanney
raf-magni
bogga
heiða
sara
ástrós
baldur
björk
jói ben
snæbó
daníel skíði
aurelie
berglind
halldóra
hlalla
jói
Solla og Gummi
bjarni og bryndís
gönguvefurinn
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni