Sunnudagur 10. janúar

Smá breyting á gönguplaninu

Við áttuðum okkur ekki alveg á hvað það er löng ganga frá Kaldárseli upp að Húsfelli og þar sem Elín Margrét var í pössun og fleiri göngugarpar voru í tímaþröng var ákveðið að byrja bara á að fara á Valahnúka, sem er lítið fjall á milli Helgafells og Húsfells. Það var bara fínt að byrja á svona litlu fjalli og þá eigum við bara Húsfell inni. Svo kom upp ósk í ferðinni um að fara á Búrfell í Heiðmörk, sem er nú líka ansi lágt fjall en það er bara svo gaman að ganga Búrfellsgjánna.


Ég hef því ákveðið að breyta planinu örlítið og miða næstu þrjár ferðir við að það taki innan við 3 klst. frá því maður leggur af stað heiman frá sér þangað til maður er kominn heim aftur því ég reikna með því að Elín Margrét verði ekki með í þessum fyrstu ferðum heldur verði í pössun. Svo er hægt að fara að lengja þetta aðeins þegar hún er farin að fara með því þá er bara hægt að stoppa og gefa henni brjóst þegar hún vill.


Nýja planið er því svona:


17. janúar : Helgafell í Mosó (sjá lýsingu bls. 96 í Íslensk fjöll) brottför kl. 12 :00 frá bílastæðinu við Ása ofan Þingvallavegamóta


24. janúar : Helgafell í Hafnarfirði (sjá lýsingu bls. 98 í Íslensk fjöll) brottför kl. 12 :00 frá Kaldárseli


31. janúar : Búrfell og Búrfellsgjá í Heiðmörk. Brottför kl. 12:00 frá bílastæðinu sem er næst Búrfellsgjánni. Gaman væri að fólk kæmi með höfuðljós eða vasaljós og þá geta þeir sem þora endað ferðina á að fara ofaní Maríuhella


7. febrúar: Úlfarsfell. Brottför frá bílastæðinu kl. 12 (ekki samt bílastæðinu fyrir neðan skógræktina hjá skógræktarfélagi Mosfellsbæinga heldur hinu stæðinu sem er nær Grafarholtinu held ég, megið endilega láta mig vita ef ég er eitthvað að bulla)


14. febrúar: Húsfell í Hafnarfirði (sjá lýsingu bls. 130 í Íslensk fjöll) brottför kl. 12 :00 frá bílastæðinu sem er aðeins áður en maður kemur að Kaldárseli


21. febrúar: Lambafell í Þrengslum : (sjá lýsingu bls. 186 í Íslensk fjöll) brottför kl. 12 :00 frá malarnáminu í Þrengslum


Svo kæmi mér nú ekkert á óvart að þetta plan breyttist eitthvað en það verður þá bara látið vita af því hér. En það var alla vega voða gaman í dag og ég hlakka til að fara á Helgafell í Mosó næstu helgi.

- Svanhildur | 17:51
Umræður

Eiríkur:

Svaka kraftur verð ég að segja. Ég strengi þess heit að reyna að fara með á a.m.k. eitt fjall (einn að fara varlega í yfirlýsingarnar.) Arnarfell við Þingvallavatn er trúlega ódýrasta fjallganga í fjallabókinni.

(14.01.10 23:26)

Eiríkur:

Svaka harka, mér lýst vel á þig. Ég heiti því að reyna að fara með á a.m.k. eitt fjall (stórar yfirlýsingar af minni hálfu bara). Arnarfell við Þingvallavatn er trúlega ódýrasta fjallgangan í fjallabókinni.

(14.01.10 23:32)

Eiríkur:

Einn aðeins að endurtaka sig í umræðunum...

(14.01.10 23:36)

Svanhildur:

Já Eiríkur, Arnarfell er með í prógramminu ásamt fullt af spennindi fjöllum í og við þjóðgarðinn.

(15.01.10 14:15)

baddy systir:

ég ætla að koma með. Gunnar ætlar að vera heima að passa Ragnar Núma- Gunnar afsakaði sig með því að vera svo slæmur í hnjánum..pff hann ætlar örugglega bara að vera heima að borða nammi!!! hehehe

En ég er búin að plata karó vinkonu til að koma með þannig að við sjáumst hress á sunnudaginn kl 12:)

(15.01.10 15:21)

Svanhildur:

Frábært, hlakka til að sjá þig

(16.01.10 10:49)

Hanna:

Ég stefni á að koma á Úlfarsfell með ykkur!! :D

(28.01.10 20:52)

Umræður




Remember Me?





Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Fólkið