Mánudagur 18. janúar

Helgafell í Mosó

tn_IMG_4455.jpg

Gönuguhópurinn gekk á Helgafell í Mosfellsbæ í dag. Það var ekki erfið ganga en skemmtileg í góðra vina hópi á fallegum afmælisdegi Svanhildar sem varð þrítug í dag þó svo þetta sé sett inn rétt eftir miðnættið.


Næst verður gengið á annað Helgafell, en í þetta skiptið í Hafnarfirði. Takk fyrir í dag og sjáumst á sunnudaginn.

- mundi | 00:58
Umræður

baddy systir:

Ekkert smá flott mynd. Takk fyrir frábæran dag og göngu. Ég ætla að stefna að því að koma í allar göngurnar, allavegana fram að "sumarfrí". Algjör snilld

(18.01.10 13:42)

baddy systir:

á að fara í fjallgöngur í öllum veðrum? ég er bara að pæla í sunnudeginum ef það verður ennþá þrumur og eldingar! :)

(21.01.10 21:00)

Svanhildur:

Planið er að láta veðrið ekki stöðva sig en auðvitað eru alltaf einhver mörk, t.d. ef veðrið verður eins og það var seinnipartinn í gær og seinnipartinn í fyrradag þá verður göngu frestað.
Ég var að kíkja á spána og hún er ekki mjög góð, á að vera grenjandi rigning, svo það er kannski spurning um að vera bara í bandi fyrir hádegi á sunnudag og sjá hvernig veðrið verður. Smá rigning er svo sem ekkert til að kvarta yfir en ef það er grenjandi rigning og hífandi rok með þá fer maður kannski að hugsa sig um.

(22.01.10 10:16)

baddy systir:

já sammála því,. en ég læt ekki smá rigningu stoppa mig...festi meira að segja kaup á vatnsheldum utanyfirbuxum í gær:) en við verðum bara í bandi

(22.01.10 13:51)

Umræður




Remember Me?





Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Fólkið