Föstudagur 8. janúar

Eitt fjall á viku

Einhver ykkar hafið eflaust heyrt af nýju verkefni Ferðafélags Íslands sem felst í því að gengið er á eitt fjall á viku, samtals 52 fjöll á einu ári. Mér fannst þetta ótrúlega sniðugt og fékk Munda með mér á kynningarfund hjá ferðafélaginu í gærkvöldi en þá kom í ljós að þetta prógramm hjá þeim er ekki alveg að henta okkur. En mér finnst þetta alveg brillíant hugmynd og ákvað því að stela henni og hef því strengt þess heit að ganga á 52 fjöll á árinu 2010.


Nú er vert að minnast þess að ég mátti lítið sem ekkert hreyfa mig síðustu 3 mánuði meðgöngunnar og hef lítið gert frá því Elín Margrét fædsdist og því er ég í nákvæmlega engu formi í dag. Það verður því bara byrjað á auðveldum fjölskylduvænum fjöllum enda verður Elín Margrét með í för í magapoka til að byrja með en svo getur hún bráðum farið að vera í bakpoka.


Ástæðan fyrir því að ég er að skrifa þetta hér á síðuna er að ég vil endilega bjóða vinum og vandamönnum að koma með, kannski er einhver sem hefur áhuga á að ganga líka á 52 fjöll og svo eru ábyggilega einhverjir sem væru til að að fara með í nokkrar fjallgöngur. Ég mun því pósta því hér á síðuna með nokkurra daga fyrirvara hvert skal haldið næstu helgi, en ég hef hugsað mér að nota sunnudagana að mestu í þetta verkefni en stundum getur verið að ég breyti um dag sökum veðurs eða annríkis.


En dagskrá næstu fjögurra vikna er svona :


10. janúar : Húsfell í Hafnarfirði (sjá lýsingu bls. 130 í Íslensk fjöll) brottför kl. 12 :00 frá Kaldárseli


17. janúar : Helgafell í Mosó (sjá lýsingu bls. 96 í Íslensk fjöll) brottför kl. 12 :00 frá bílastæðinu við Ása ofan Þingvallavegamóta


24. janúar : Helgafell í Hafnarfirði (sjá lýsingu bls. 98 í Íslensk fjöll) brottför kl. 12 :00 frá Kaldárseli


31. janúar : Lambafell í Þrengslum : (sjá lýsingu bls. 186 í Íslensk fjöll) brottför kl. 12 :00 frá malarnáminu í Þrengslum


Þetta eru allt lítil og létt fjöll og tilvalið að taka börnin með í sunnudagsgöngu. Það getur vel verið að dagskráin breytist eitthvað og þá læt ég vita af því hér á síðunni. Þið megið líka gjarnan benda á skemmtileg fjöll í nágrenni Reykjavíkur, til að byrja með verður aðeins farið á minni og auðveldari fjöll en með hækkandi sól og betra formi verður ráðist í erfiðari og meira spennandi fjöll.

- Svanhildur | 21:41
Umræður

Óli Helgi:

Stórkostleg hugmynd.

Ég fer með ef þið gangið upp á fjall hér fyrir norðan!

Óli Helgi.

(09.01.10 00:24)

Unnur Sædís:

Sammála - frábær hugmynd. Vil gjarnan vera með - verð í bandi :-)

(09.01.10 00:27)

Svanhildur:

Óli Helgi, við tökum ábyggilega eitthvert fjall þarna fyrir norðan einhvern tíma, verðum í bandi þegar kemur að því.

Unnur, hlakka til að sjá þig á morgun.

(09.01.10 15:36)

Bjössi:

Hvenær er Herðubreið á dagskránni?

(14.01.10 22:22)

Umræður




Remember Me?





Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Fólkið