janúar 31, 2010

Tindfjöll

tn_IMG_4531.jpg


Einmitt svona var veðurblíðan uppi í Tindfjöllum í gær.

-mundi | 16:55 | Comments (0)

janúar 30, 2010

Gangan á morgun í Búrfellsgjá kl. 11:00

Ég hef ákveðið að leggja klukkutíma fyrr af stað í sunnudagsgöngu morgundagsins til að ná bronsleiknum kl. 13. Þá vitið þið það ef þið viljið koma með.

-Svanhildur | 14:40 | Comments (2)

janúar 28, 2010

Helgafell í Hfj. sl. sunnudag

tn_DSC03543.JPG


Ég þakka Georges fyrir myndina en hún er frá Helgafellsgöngunni á sunnudaginn síðasta. Þá var hvasst.

-mundi | 16:56 | Comments (0)

janúar 24, 2010

Góðan daginn

tn_IMG_4474.jpg

Hér eru allir hressir og við góða heilsu. kv. M

-mundi | 20:33 | Comments (3)

janúar 18, 2010

Helgafell í Mosó

tn_IMG_4455.jpg

Gönuguhópurinn gekk á Helgafell í Mosfellsbæ í dag. Það var ekki erfið ganga en skemmtileg í góðra vina hópi á fallegum afmælisdegi Svanhildar sem varð þrítug í dag þó svo þetta sé sett inn rétt eftir miðnættið.


Næst verður gengið á annað Helgafell, en í þetta skiptið í Hafnarfirði. Takk fyrir í dag og sjáumst á sunnudaginn.

-mundi | 00:58 | Comments (4)

janúar 10, 2010

Smá breyting á gönguplaninu

Við áttuðum okkur ekki alveg á hvað það er löng ganga frá Kaldárseli upp að Húsfelli og þar sem Elín Margrét var í pössun og fleiri göngugarpar voru í tímaþröng var ákveðið að byrja bara á að fara á Valahnúka, sem er lítið fjall á milli Helgafells og Húsfells. Það var bara fínt að byrja á svona litlu fjalli og þá eigum við bara Húsfell inni. Svo kom upp ósk í ferðinni um að fara á Búrfell í Heiðmörk, sem er nú líka ansi lágt fjall en það er bara svo gaman að ganga Búrfellsgjánna.


Ég hef því ákveðið að breyta planinu örlítið og miða næstu þrjár ferðir við að það taki innan við 3 klst. frá því maður leggur af stað heiman frá sér þangað til maður er kominn heim aftur því ég reikna með því að Elín Margrét verði ekki með í þessum fyrstu ferðum heldur verði í pössun. Svo er hægt að fara að lengja þetta aðeins þegar hún er farin að fara með því þá er bara hægt að stoppa og gefa henni brjóst þegar hún vill.


Nýja planið er því svona:


17. janúar : Helgafell í Mosó (sjá lýsingu bls. 96 í Íslensk fjöll) brottför kl. 12 :00 frá bílastæðinu við Ása ofan Þingvallavegamóta


24. janúar : Helgafell í Hafnarfirði (sjá lýsingu bls. 98 í Íslensk fjöll) brottför kl. 12 :00 frá Kaldárseli


31. janúar : Búrfell og Búrfellsgjá í Heiðmörk. Brottför kl. 12:00 frá bílastæðinu sem er næst Búrfellsgjánni. Gaman væri að fólk kæmi með höfuðljós eða vasaljós og þá geta þeir sem þora endað ferðina á að fara ofaní Maríuhella


7. febrúar: Úlfarsfell. Brottför frá bílastæðinu kl. 12 (ekki samt bílastæðinu fyrir neðan skógræktina hjá skógræktarfélagi Mosfellsbæinga heldur hinu stæðinu sem er nær Grafarholtinu held ég, megið endilega láta mig vita ef ég er eitthvað að bulla)


14. febrúar: Húsfell í Hafnarfirði (sjá lýsingu bls. 130 í Íslensk fjöll) brottför kl. 12 :00 frá bílastæðinu sem er aðeins áður en maður kemur að Kaldárseli


21. febrúar: Lambafell í Þrengslum : (sjá lýsingu bls. 186 í Íslensk fjöll) brottför kl. 12 :00 frá malarnáminu í Þrengslum


Svo kæmi mér nú ekkert á óvart að þetta plan breyttist eitthvað en það verður þá bara látið vita af því hér. En það var alla vega voða gaman í dag og ég hlakka til að fara á Helgafell í Mosó næstu helgi.

-Svanhildur | 17:51 | Comments (7)

janúar 8, 2010

Eitt fjall á viku

Einhver ykkar hafið eflaust heyrt af nýju verkefni Ferðafélags Íslands sem felst í því að gengið er á eitt fjall á viku, samtals 52 fjöll á einu ári. Mér fannst þetta ótrúlega sniðugt og fékk Munda með mér á kynningarfund hjá ferðafélaginu í gærkvöldi en þá kom í ljós að þetta prógramm hjá þeim er ekki alveg að henta okkur. En mér finnst þetta alveg brillíant hugmynd og ákvað því að stela henni og hef því strengt þess heit að ganga á 52 fjöll á árinu 2010.


Nú er vert að minnast þess að ég mátti lítið sem ekkert hreyfa mig síðustu 3 mánuði meðgöngunnar og hef lítið gert frá því Elín Margrét fædsdist og því er ég í nákvæmlega engu formi í dag. Það verður því bara byrjað á auðveldum fjölskylduvænum fjöllum enda verður Elín Margrét með í för í magapoka til að byrja með en svo getur hún bráðum farið að vera í bakpoka.


Ástæðan fyrir því að ég er að skrifa þetta hér á síðuna er að ég vil endilega bjóða vinum og vandamönnum að koma með, kannski er einhver sem hefur áhuga á að ganga líka á 52 fjöll og svo eru ábyggilega einhverjir sem væru til að að fara með í nokkrar fjallgöngur. Ég mun því pósta því hér á síðuna með nokkurra daga fyrirvara hvert skal haldið næstu helgi, en ég hef hugsað mér að nota sunnudagana að mestu í þetta verkefni en stundum getur verið að ég breyti um dag sökum veðurs eða annríkis.


En dagskrá næstu fjögurra vikna er svona :


10. janúar : Húsfell í Hafnarfirði (sjá lýsingu bls. 130 í Íslensk fjöll) brottför kl. 12 :00 frá Kaldárseli


17. janúar : Helgafell í Mosó (sjá lýsingu bls. 96 í Íslensk fjöll) brottför kl. 12 :00 frá bílastæðinu við Ása ofan Þingvallavegamóta


24. janúar : Helgafell í Hafnarfirði (sjá lýsingu bls. 98 í Íslensk fjöll) brottför kl. 12 :00 frá Kaldárseli


31. janúar : Lambafell í Þrengslum : (sjá lýsingu bls. 186 í Íslensk fjöll) brottför kl. 12 :00 frá malarnáminu í Þrengslum


Þetta eru allt lítil og létt fjöll og tilvalið að taka börnin með í sunnudagsgöngu. Það getur vel verið að dagskráin breytist eitthvað og þá læt ég vita af því hér á síðunni. Þið megið líka gjarnan benda á skemmtileg fjöll í nágrenni Reykjavíkur, til að byrja með verður aðeins farið á minni og auðveldari fjöll en með hækkandi sól og betra formi verður ráðist í erfiðari og meira spennandi fjöll.

-Svanhildur | 21:41 | Comments (4)





Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Fólkið