3 vikur komnar

Hér kemur svo mynd af heimasætunni eins og hún leit út í dag, þriggja vikna gömul. Hún dafnar held ég bara þokkalega og verður sífellt mannalegri.
Svo bar það til tíðinda í dag að atvinnuveitandi minn gaf það formlega út að við erum að stoppa vegna verkefnaleysis um áramót. Ég vil endilega að allir viti af því svo að þeir hugsi til mín ef að þeir frétta af einhverri vinnu á lausu,
bestu kveðjur
Birta:
Hún er alveg yndisleg. Enn og aftur til hamingju með prinsessuna ;)
(13.12.09 23:53)
Ásdís Jóh:
Vá hvað hún er orðin mannaleg!!!
(15.12.09 15:05)