Þriðjudagur 3. nóvember

Skattmann herðir tökin

Það var í dag sem ég fór að finna fyrir aukinni skattheimtu. Inn um lúguna hér læddist gluggapóstur frá tollstjóraembættinu. Þannig er að ég hef nú alltaf átt fyrirtækiskennitölu síðan ég starfaði sjálfstætt. Hún hefur sofið ofan í skúffu síðan 2002. Það sem ég hef þurft að greiða af henni eru þetta 5-10 þúsund á ári fyrir endurskoðun og ársreikning sem þarf að skila árlega þó ekki sé rekstur.


Nú var að bætast við skattur. Útvarpsgjald heitir hann og leggst á allar kennitölur í landinu. 17.200 krónur á ég að greiða fyrir miðjan mánuðinn ellegar fæ ég boðun í héraðsdóm eins og þegar ég vanreiknaði óvart vaskinn um 20 og eitthvað þúsund hérna um árið. (bankaræningjarnir eru ekki búinir að fá svoleiðis!!)


17.200 krónur borgar semsagt fyrirtæki sem hefur enga starfsmenn og er ekki í rekstri, og alls ekki með útvarp fyrir að hafa Rúv.


Ég held að þetta hljóti að vera heimsmet í heimsku

- mundi | 11:51
Umræður

torfi:

... ég get svo frætt þig á því að þau fyrirtæki sem hafa starfsmenn borga MIKLU meira en 17þ í stef gjald ofan á allt saman... átt þú þá ekki vona á einhverri þannig rukkun fljótlega?

(07.11.09 21:45)

Mundi:

hahhaa... það væri það. En ég ákvað að taka þetta alla leið. Ég skrifaði fjármálaráðherra og menntamálaráðherra bréf og kvartaði undan þessu rugli. Menntamálaráðherra hefur nú svarað mér. Auðvitað gefa stjórnmálamenn aldrei afdráttarlaus svör, en hún gaf í skyn að þarna væri galli á löggjöfinni og sagði að ef að ég væri ósáttur skyldi ég láta reyna á að kæra þetta fyrir skattstjóra. Það verður minn næsti leikur.


Lifi litli maðurinn.....

(08.11.09 00:15)

torfi:

Albert var vinur hans... en nú er hann allur. Verður að koma í ljós hvort og hvar leynast haukar í horni.

(09.11.09 08:32)

Eva:

Ég var að spjalla við skattmann áðan - út af allt öðru reyndar, en spurði út í þessa sálma. Fékk þá þær upplýsingar að margir hefðu kært þetta og ansi margir afskráð ehf-in sín sem hefðu verið sofandi í mörg ár. Þegar margir litlir koma saman þá geta þeir nú stundum hreyft við fílnum....vonum það!

(16.11.09 14:57)

Mundi:

já - ég mun kæra og vona að þessu verði hnekkt.

(16.11.09 18:59)

Umræður




Remember Me?





Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Fólkið