Mánudagur 23. nóvember

Komnar heim

tn_IMG_4263.jpg

Þær mæðgur eru nú komnar heim. Áfram verður fylgst með þeim næstu daga. Það er auðvitað alveg snilld og því verður lambalæri í kvöldmatinn hér þótt mánudagur sé...

kveðjur

- mundi | 19:02
Umræður

Ásdís Jóh:

Æðislegt! Til hamingju með að vera sameinuð heima fyrir, það er bara best :)

(23.11.09 19:19)

Svanhildur:

Oh já það er alveg yndislegt að vera komin heim og vera hér saman litla fjölskyldan.

(24.11.09 08:16)

Hanna sys:

dásamlegt! Mikið rosalega er hún falleg, sver sig í föðurættina ;)

Hlakka til að koma í heimsókn á næstu vikum og knúsa hana. Alveg yndislegt að eignast frænku og frænda nánast á sama tíma! Gangi ykkur vel og heilsist ykkur líka vel!
p.s. það er ekkert að því að hafa lambalæri á mánudegi þegar tilefnið er ærið!

(24.11.09 09:55)

Eva:

Þessi stelpa er nú með þeim allra sætustu... og ég á nú tvær svo ég veit alveg hvað ég syng þegar kemur að litlum sætum dætrum.

(24.11.09 16:02)

selma:

Hæ Mundi og Svanhildur, til hamingju með þessa fallegu dömu. Kveðja frá Kalla og Selma

(24.11.09 20:44)

Sísý:

æhh jedúdda mía hún er algert krútt :D Það verður líklega e-r bið í að við hittumst en þá er hægt að knúsa hana þeim mun betur þar sem hún verður orðin minna brothætt ;) Gangi ykkur sem allra allra best í framhaldinu kæra fjölskylda!
kreistur og knúsur að norðan.

(24.11.09 21:24)

Björk (Akureyringur):

Innilega til hamingju með dömuna. Stórglæsileg og flott eins og foreldrarnir.
Gangi ykkur vel í barnauppeldinu :-)

(24.11.09 22:26)

Umræður




Remember Me?





Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Fólkið