Laugardagur 21. nóvember

Guðmundsdóttir er mætt

tn_IMG_4226.jpg


Hérna er hún litla stelpan okkar Svanhildar. Hún fæddist kl.14.29 þann 19. nóvember. Hún var 12 merkur eða 3060g og 51 sentimeter, lítil og grönn eins og pabbinn.


Fæðingin gekk ekki átakalaust en afraksturinn er einstakur eins og þið sjáið. Þær mæðgur eru nú að ná heilsu og það gengur hratt og vel. Við erum afskaplega glöð og hamingjusöm.


Við þökkum allar kveðjurnar og sendum ykkur okkar bestu.

- mundi | 00:47
Umræður

Magna:

Mikið er maður nú lítill og fallegur:) Innilega til hamingju með prinsessuna:)

(21.11.09 08:36)

Ásdís Jóh:

Hún er yndisleg! Innilega til hamingju aftur ;) Sendum okkar allra bestu kveðjur til ykkar allra, megi þær mæðgur ná sér sem fyrst!

Hlökkum til að heyra í ykkur þegar tími gefst til ;)

(21.11.09 10:51)

Herdís Björk:

Hún er gullfalleg litla daman - enn og aftur innilega til hamingju :)

(21.11.09 11:12)

Umræður




Remember Me?





Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Fólkið