Föstudagur 30. október

Viðburðaríkur dagur

Það er fyrsti rjúpnadagur í dag. ég er búinn að bíða eftir honum af óvanalega mikilli eftirvæntingu. Í gærkvöldi gerði ég mig kláran, hafði reyndar upphaflega ætlað af stað þá en frestaði för þar sem mér fannst að ég væri að veikjast. Hræddur um að það sé svínið en veit það þó ekki.


Ég vaknaði kl 5 í morgun og ákvað þá að heilsan væri ekki nógu góð til rjúpnaveiða eða til þess að mæta í vinnu sem að ég lét vinnufélagana vita af um kl 8. Um kl 9 ákvað ég svo að fara í apótek til að kaupa mér hóstamixtúru og þess háttar. Þegar ég kom út stóð bílskúrinn minn opinn og þar var allt eins og eftir sprengingu. Innbrotsþjófur hafði látið greipar sópa. Ég bakkaði út og sé þá að hann var búinn að moka þýfinu öllu inn í minn fjallabíl og var þar steinsofandi.

Ég hringdi í lögregluna frekar óðamála og sagði þeim frá innbroti og því að þjófurinn væri enn á staðnum. Þeir fundu samt ekki 5. gírinn og komu eftir 20 mínútur en þá var ég búinn að hringja í þá aftur..


Hinn seki var þá járnaður og færður á brott. Ég sit eftir með allt í drasli en sennilega var engu stolið. En töluverðar skemmdir voru unnar, mest á tvennu mér mikilvægu, jeppanum mínum og svo öryggistilfinningunni sem fylgir því að vera heima hjá sér.


Ég er alveg svakalega fúll í augnablikinu og eiginlega bara reiður. Það stoðar trúlega lítið, svo nú er bara að ná úr sér hitanum og lasleikanum og fara að taka til hendinni.


Öryggisfyrirtækin eignuðust nýjan viðskiptavin í dag.

- mundi | 19:51
Umræður

Rán:

USSS, þetta er ekki gott. Samt gott að heyra að þið misstuð ekki dótið ykkar, svolítið lán í ólani.
Láttu þér batna.

Kv. úr Birkihlíðinni.

(31.10.09 13:06)

Óli Helgi:

Þetta er ferlegt. Alveg afleitt að brjótast inn hjá fólki. En þú verður að komast í rjúpur, er búinn að heyra fáránlegar veiðitölur hér og þar. Einn veiddi 30 við Skagaströnd, 2 veiddu 60 austur á Héraði. Tengdó veiddi 2 í gær og hann náði 1 í viðbót í dag inni í Karlsárdal. Ég fór með honum í dag og við sáum ekkert nema þessa einu rjúpu. En þetta er alltaf jafn gaman, á bara eftir að vera betra þegar maður fer að veiða eitthvað.

(31.10.09 23:00)

Dagný:

Úff, já það er hrikalegt að vera rændur öryggistilfinningunni.. en þó lán í óláni að strákuglan hafi ákveðið að leggja sig bara innan um allt dótið frekar en að stinga af. Vonandi nærðu heilsu sem fyrst! Batakveðjur í kotið.

(31.10.09 23:15)

torfi:

Þessir menn eru botnfall... fari þeir allir í fúlan pitt.

(01.11.09 12:55)

Mundi:

úrhrök. algjör úrhrök

(01.11.09 21:17)

sara hrund:

ég skil þig vel að vera reiður og bara hundfúll. ég vona nú að þér sé farið að líða betur núna.. ágætlega grátbroslegt og frábært fyrir ykkur hjónin að þjófurinn hafi verið svo illa til reika að hann hafi ekki getað klárað verkið. lán í óláni :)
bestu kveðjur í hlíðarnar..

(03.11.09 18:35)

Umræður




Remember Me?





Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Fólkið
daia
baddý
hanna
torfi og eva
óli helgi
ásdís
jón gunnar
sísý mall
fanney
raf-magni
bogga
heiða
sara
ástrós
baldur
björk
jói ben
snæbó
daníel skíði
aurelie
berglind
halldóra
hlalla
jói
Solla og Gummi
bjarni og bryndís
gönguvefurinn
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni