Föstudagur 23. október

Svínaflensubólusetning

Guð hvað það er langt síðan ég hef sett inn færslu á þessa síðu, mundi varla passwordið mitt.


En ástæðan fyrir því að ég ætla að tjá mig aðeins hér á alnetinu er sú að undanfarna daga hafa flestar mínar hugsanir og samtöl snúist um það hvort maður eigi að láta bólusetja sig eða ekki. Ég var nú reyndar farin að halda að þesi ákvörðun yrði bara tekin fyrir mig þar sem að það var orðin svo mikil seinkun á bóluefninu að sennilega yrði ekkert farið að bólusetja óléttar konur fyrr en eftir að ég væri búin að eiga en svo fór allt á fullt í gær. Þá fékk ég símhringingu frá heilsugæslustöðinni minni og var boðið að mæta í bólusetningu 2. nóvember og var endilega hvött til að þiggja boðið því það væri nú ekki gott ef ég myndi veikjast skömmu fyrir fæðingu og heldur ekki eftir fæðingu og svona yrði barnið líka bólusett í móðurkviði svo ég þyrfti ekki að hafa áhyggjur af því að barnið veiktist af svínaflensu pínulítið. Svo að ég þáði boðið um bólusetningu 2. nóvember og hugsaði með mér að ég gæti kynnt mér málið vel þangað til og byrjaði fyrir alvöru að lesa mér til í gær.


Maður verður auðvitað enn ruglaðri af því að kynna sér málið og kemst bara að því að maður veit ekki neitt um þetta og það sem versta er að kannski vita "sérfræðingarnir" heldur ekkert svo mikið um þetta. Á síðu landlæknisembættisins er þvílíkt mælt með að allir láti bólusetja sig og blásið á allan orðróm um slæmar aukaverkanir. Einhvern vegin fannst mér eins og ég væri að lesa áróður meira heldur en óhlutlægan fróðleik um bóluefnið og það er einmitt vandamálið, annað hvort er fólk með eða á móti bóluefninu og eins og það sé verið að selja manni annað hvort að láta bólusetja sig eða að sleppa því og maður veit ekkert hverju maður á að trúa.


Ég talaði við tvær óléttar vinkonur í gær um þetta mál því allar erum við í sömu krísu en þó allar í mismunandi aðstæðum. Ein vinnur í kanadíska sendiráðinu og getur þess vegna fengið bóluefni sem er án ónæmisvaka en í Kanada er mælt með því fyrir ófrískar konur því það er eitthvað ekki eins sterkt og ætti því að hafa minni aukaverkanir. Hin ófríska vinkona mín býr í Frakklandi og þar er óléttum konum ekki ráðlagt að láta bólusetja sig fyrr en þetta ónæmisvakalausa bóluefni er komið þangað sem verður víst í nóvember. Hér er hins vegar bara eitt bóluefni í boði og það er með þessum ónæmisvökum sem ég veit varla hvað er og veit ekkert hvort eru slæmir fyrir barnið eða ekki en fyrst það er verið að mælast til þess á öðrum Vesturlöndum að óléttar konur fái þetta bóluefni án ónæmisvaka þá fór ég alveg í flækju því auðvitað vill maður ekki gera neitt sem gæti skaðað barnið manns en á sama tíma vill maður helst ekkert vera að taka sénsinn á að fá þessa flensu og verða kannski hundveikur, ekki væri það gott fyrir barnið, og heldur ekki gott ef barnið veikist af flensunni mjög ungt. Svo er þetta kvikasilfursdæmi. EInhverjir segja að það sé kvikasilfur í bóluefninu og þá hugsar maður með sér "af hverju má ég ekki borða lúðu og túnfisk en á svo að láta sprauta í mig kvikasilfri?" En á sama tíma segir sóttvarnalæknir að þetta sé ekki kvikasilfur heldur bara eitthvað skylt efni og þar sem allir virðast vera í einhverri áróðursherferð þá veit maður ekkert hverju maður á að trúa.


Með þessar hugsanir og efasemdir fór ég að sofa í gærkvöldi og ákvað að ég yrði að leita mér meiri upplýsinga um þetta, ég hefði fram til 2. nóvember til að ákveða mig. En svo fékk ég símtal í morgun þar sem mér var tjáð að það væru til 10 aukaskammtar af bóluefni á heilsugæslustöðinni minni og ég gæti komið núna fyrir hádegið og fengið bólusetningu ef ég vildi. Ég var ein af þssum heppnu. Úff. Hvað átti ég nú að gera? Ég ræddi mínar efasemdir í símann við lækninn sem hringdi í mig en hún, eins og langflestir heilbrigðisstarfsmenn hér á landi, var sannfærð um að þetta bóluefni hefði aldrei verið samþykkt ef það hefði einhver slæm áhrif og það væri sérstaklega mikilvægt að ófrískar konur létu bólusetja sig en á sama tíma sagði hún að auðvitað væri þetta mín ákvörðun. Ég stóð því frammi fyrir því að þurfa að taka mikilvæga en að mér fannst óupplýsta ákvörðun og ákvað að lokum að treysta heilbrigðisyfirvöldum og þiggja bólusetningu. Hringdi þó fyrst í Munda og mömmu til að fá staðfestingu á því að ég væri ekki að gera neitt rangt, ekki það að þau viti eitthvað meira um þetta en ég en ég varð bara að fá þeirra samþykki.


En nú er ég sem sagt komin heim úr bólusetningu og er bara að vonast til að verða ekki veik af henni og ég verð bara að trúa því að þetta hafi verið rétt ákvörðun sem sé góð bæði fyrir mig og barnið.

- Svanhildur | 12:04
Umræður

Ásdís Jóh:

Úff ekki auðveld ákvörðun að taka svona í flýti! Þetta er allt saman hið flóknasta mál :(

(23.10.09 13:15)

baddy:

ohh ég er svoooo sammála þér með þetta. Það er svo erfitt að taka upplýsta ákvörðun í þessu svínabólusetningarmáli!! Sem heilbrigðisstarfsmaður þá er ég samt á báðum áttum með þetta. Mér var boðið í bólusteningu 2.nóvember og hugsaði eins og þú - ég hef þá tímann þangað til til að hugsa mig um. En mér finnst þetta erfið ákvörðu, ég er að fara til ljósunnar á þriðjudaginn og ætla að ræða þetta við hana þá.

Vinkona mín er ólétt og að vinna á vökudeildinni og læknarnir þar voru alveg ákveðnir í að hún ætti að bólusetja sig sem hún og gerði. Þannig að almennt þá eru "fræðimenn" sammála um að þetta sé alveg skaðlaust - en eru þeir 100% vissir??!! hummm...

Svo er sagt að það geti tekið allt upp í 10-14 daga að mynda þetta mótefni með bóluefninu og ég er sett 10.nóv og hvað ef ég verð veik af þessu bóluefni (sumir verða aldrei eins veikir og eftir flensusprautu!!) og krílið kemur aðeins fyrir settan dag og ég verð fárveik í fæðingunni!!!

Spurning um að næla sér bara í þessa flensu strax og láta líkamann um að mynda mótefni sjálfur og sleppa þá við þetta þessi aukaefni sem eru í sprautunni.
Ég skil því vel þetta hugarangur þitt, held að allar óléttar konur séu að fara yfirum af þessari sömu hugsun!

Ætli maður endi ekki bara á því að þiggja þessa helvítis sprautu!!

(23.10.09 13:29)

Eva:

Til lukku með þessa ákvörðun. Eitt sem þú getur líka huggað þig við er að þú ert svo langt gengin með barnið að þó svo að það sé eitthvað kvikasilfurskylt efni í þessu þá er fóstrið orðið svo stórt og sterkt að það þolir orðið mun meira en það þoldi fyrir nokkrum mánuðum. Bara taka Pollyönnu á þetta - krossa svo fingur og vona að þú veikist ekki næstu daga svo þetta geri nú almennilegt gagn. Gangi þér vel á endasprettinum.

(23.10.09 14:50)

Svanhildur:

Já Baddý, þetta er ekkert auðveld ákvörðun. En takk fyrir peppið Eva.

(23.10.09 18:00)

Umræður




Remember Me?





Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Fólkið