Viðburðaríkur dagur
Það er fyrsti rjúpnadagur í dag. ég er búinn að bíða eftir honum af óvanalega mikilli eftirvæntingu. Í gærkvöldi gerði ég mig kláran, hafði reyndar upphaflega ætlað af stað þá en frestaði för þar sem mér fannst að ég væri að veikjast. Hræddur um að það sé svínið en veit það þó ekki.
Ég vaknaði kl 5 í morgun og ákvað þá að heilsan væri ekki nógu góð til rjúpnaveiða eða til þess að mæta í vinnu sem að ég lét vinnufélagana vita af um kl 8. Um kl 9 ákvað ég svo að fara í apótek til að kaupa mér hóstamixtúru og þess háttar. Þegar ég kom út stóð bílskúrinn minn opinn og þar var allt eins og eftir sprengingu. Innbrotsþjófur hafði látið greipar sópa. Ég bakkaði út og sé þá að hann var búinn að moka þýfinu öllu inn í minn fjallabíl og var þar steinsofandi.
Ég hringdi í lögregluna frekar óðamála og sagði þeim frá innbroti og því að þjófurinn væri enn á staðnum. Þeir fundu samt ekki 5. gírinn og komu eftir 20 mínútur en þá var ég búinn að hringja í þá aftur..
Hinn seki var þá járnaður og færður á brott. Ég sit eftir með allt í drasli en sennilega var engu stolið. En töluverðar skemmdir voru unnar, mest á tvennu mér mikilvægu, jeppanum mínum og svo öryggistilfinningunni sem fylgir því að vera heima hjá sér.
Ég er alveg svakalega fúll í augnablikinu og eiginlega bara reiður. Það stoðar trúlega lítið, svo nú er bara að ná úr sér hitanum og lasleikanum og fara að taka til hendinni.
Öryggisfyrirtækin eignuðust nýjan viðskiptavin í dag.
Svínaflensubólusetning
Guð hvað það er langt síðan ég hef sett inn færslu á þessa síðu, mundi varla passwordið mitt.
En ástæðan fyrir því að ég ætla að tjá mig aðeins hér á alnetinu er sú að undanfarna daga hafa flestar mínar hugsanir og samtöl snúist um það hvort maður eigi að láta bólusetja sig eða ekki. Ég var nú reyndar farin að halda að þesi ákvörðun yrði bara tekin fyrir mig þar sem að það var orðin svo mikil seinkun á bóluefninu að sennilega yrði ekkert farið að bólusetja óléttar konur fyrr en eftir að ég væri búin að eiga en svo fór allt á fullt í gær. Þá fékk ég símhringingu frá heilsugæslustöðinni minni og var boðið að mæta í bólusetningu 2. nóvember og var endilega hvött til að þiggja boðið því það væri nú ekki gott ef ég myndi veikjast skömmu fyrir fæðingu og heldur ekki eftir fæðingu og svona yrði barnið líka bólusett í móðurkviði svo ég þyrfti ekki að hafa áhyggjur af því að barnið veiktist af svínaflensu pínulítið. Svo að ég þáði boðið um bólusetningu 2. nóvember og hugsaði með mér að ég gæti kynnt mér málið vel þangað til og byrjaði fyrir alvöru að lesa mér til í gær.
Maður verður auðvitað enn ruglaðri af því að kynna sér málið og kemst bara að því að maður veit ekki neitt um þetta og það sem versta er að kannski vita "sérfræðingarnir" heldur ekkert svo mikið um þetta. Á síðu landlæknisembættisins er þvílíkt mælt með að allir láti bólusetja sig og blásið á allan orðróm um slæmar aukaverkanir. Einhvern vegin fannst mér eins og ég væri að lesa áróður meira heldur en óhlutlægan fróðleik um bóluefnið og það er einmitt vandamálið, annað hvort er fólk með eða á móti bóluefninu og eins og það sé verið að selja manni annað hvort að láta bólusetja sig eða að sleppa því og maður veit ekkert hverju maður á að trúa.
Ég talaði við tvær óléttar vinkonur í gær um þetta mál því allar erum við í sömu krísu en þó allar í mismunandi aðstæðum. Ein vinnur í kanadíska sendiráðinu og getur þess vegna fengið bóluefni sem er án ónæmisvaka en í Kanada er mælt með því fyrir ófrískar konur því það er eitthvað ekki eins sterkt og ætti því að hafa minni aukaverkanir. Hin ófríska vinkona mín býr í Frakklandi og þar er óléttum konum ekki ráðlagt að láta bólusetja sig fyrr en þetta ónæmisvakalausa bóluefni er komið þangað sem verður víst í nóvember. Hér er hins vegar bara eitt bóluefni í boði og það er með þessum ónæmisvökum sem ég veit varla hvað er og veit ekkert hvort eru slæmir fyrir barnið eða ekki en fyrst það er verið að mælast til þess á öðrum Vesturlöndum að óléttar konur fái þetta bóluefni án ónæmisvaka þá fór ég alveg í flækju því auðvitað vill maður ekki gera neitt sem gæti skaðað barnið manns en á sama tíma vill maður helst ekkert vera að taka sénsinn á að fá þessa flensu og verða kannski hundveikur, ekki væri það gott fyrir barnið, og heldur ekki gott ef barnið veikist af flensunni mjög ungt. Svo er þetta kvikasilfursdæmi. EInhverjir segja að það sé kvikasilfur í bóluefninu og þá hugsar maður með sér "af hverju má ég ekki borða lúðu og túnfisk en á svo að láta sprauta í mig kvikasilfri?" En á sama tíma segir sóttvarnalæknir að þetta sé ekki kvikasilfur heldur bara eitthvað skylt efni og þar sem allir virðast vera í einhverri áróðursherferð þá veit maður ekkert hverju maður á að trúa.
Með þessar hugsanir og efasemdir fór ég að sofa í gærkvöldi og ákvað að ég yrði að leita mér meiri upplýsinga um þetta, ég hefði fram til 2. nóvember til að ákveða mig. En svo fékk ég símtal í morgun þar sem mér var tjáð að það væru til 10 aukaskammtar af bóluefni á heilsugæslustöðinni minni og ég gæti komið núna fyrir hádegið og fengið bólusetningu ef ég vildi. Ég var ein af þssum heppnu. Úff. Hvað átti ég nú að gera? Ég ræddi mínar efasemdir í símann við lækninn sem hringdi í mig en hún, eins og langflestir heilbrigðisstarfsmenn hér á landi, var sannfærð um að þetta bóluefni hefði aldrei verið samþykkt ef það hefði einhver slæm áhrif og það væri sérstaklega mikilvægt að ófrískar konur létu bólusetja sig en á sama tíma sagði hún að auðvitað væri þetta mín ákvörðun. Ég stóð því frammi fyrir því að þurfa að taka mikilvæga en að mér fannst óupplýsta ákvörðun og ákvað að lokum að treysta heilbrigðisyfirvöldum og þiggja bólusetningu. Hringdi þó fyrst í Munda og mömmu til að fá staðfestingu á því að ég væri ekki að gera neitt rangt, ekki það að þau viti eitthvað meira um þetta en ég en ég varð bara að fá þeirra samþykki.
En nú er ég sem sagt komin heim úr bólusetningu og er bara að vonast til að verða ekki veik af henni og ég verð bara að trúa því að þetta hafi verið rétt ákvörðun sem sé góð bæði fyrir mig og barnið.
-Svanhildur
| 12:04
| Comments (4)
Göngutúr í haustblíðu

Við röltum í Perluna í dag og keyptum okkur ís. Svona litu fjöllin út í kring um borgina í dag