Þriðjudagur 1. september

Jæja laxmaður

tn_IMG_4117.jpg


Það er ekki svo ofsalega langt síðan að ágætur veiðimaður við mig að myndir af veiðimanni með góðan afla sæjust varla lengur. Ekki vegna þess að menn veiddu minna, heldur væri það alveg gersamlega úr tísku að láta sjá sig með fullar hendur af fugli eða fiski. Nú væri málið að sleppa aftur því sem maður fengi.


Þetta ætla ég hins vegar að hunsa og fá að vera rígmontinn eitt augnablik... ...og svo kannski annað til viðbótar. Hér má nefnilega sjá morgunveiðina þennan þriðjudaginn. Ég þakka velunnara mínum fyrir að leyfa mér að njóta með sér.


Aulabrosið sem er á mér á neðri myndinni (sem ég tók sjálfur!) verður á mér næstu daga....

- mundi | 18:47
Umræður

Helga:

Til hamingju með aflann. Svanhildur hlýtur að bíða spennt eftir að mega fá sér graflax. Okkur Eiríki varð hugsað til þín þegar við sáum veðurspána fyrir frakkaferðina. Ekki beint heppinn með veður í þessum jómfrúarferðum!
Kveðja Helga

(03.09.09 19:59)

Mundi:

hahaha... sæl Helga. Nei það var á fimmta eða sjötta degi sem sá til sólar!! þetta herðir mann eflaust, en þetta gekk allt mjög vel.

bestu kveðjur vestur

(03.09.09 20:53)

Umræður




Remember Me?





Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið