Fimmtudagur 20. ágúst

Kominn af fjöllum

tn_IMG_4097.jpg


Þá er búið að brjóta ísinn í leiðsögninni. það var nú reyndar gert á hornströndum á dögunum en síðan fór ég í 13 daga ferð með 9 hressa frakka um skaftafell, laka og landmannalaugar. því er skemmst frá að segja að allt gekk eins og í sögu og ég vona að frakkarnir hafi skemmt sér eins vel og ég, þá er allt eins og það á að vera. Samtals urðu þetta 194 km gengnir samkvæmt gps mælingum mínum.


Þegar við komum gangandi til byggða úr laka niður í eldvatnsbotna þá var nýafstaðið það mesta þrumuveður sem ég hef séð hérlendis. úr því kom þetta líka risahagl. sannarlega fátítt, en þar með næ ég sennilega að lenda í snjókomu í öllum mánuðum þessa árs!! þó er ekki alveg útséð með það...


einhverjar myndir af fyrstu dögum ferðarinnar má sjá á síðu eins úr hópnum. hún er -hér-

- mundi | 21:46
Umræður

Umræður




Remember Me?





Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið