Miðvikudagur 8. júlí

Vestmannaeyjar ofl

Síðustu helgi lengdum við til þess að fara á ættarmót hjá móðurætt Svanhildar. Við fórum á fimmtudagskvöldi til Vestmannaeyja með Herjólfi og komum til baka með honum biluðum á sunnudagsmorgun. Vestmannaeyjar sýndu okkur öll veður, á föstudag fengum við þoku og síðan glampandi sól og logn sem við notuðum til að ganga á Eldfellið.


Síðan fengum við góðan skammt af roki, rigningu og þoku svo að við nenntum ekki að ganga á Heimaklett eins og staðið hafði til, en það var nú bara allt í lagi. Félagsskapurinn var góður og helgin vel heppnuð. Myndavélin gleymdist hins vegar heima svo þið fáið engin sýnishorn. Hún verður hins vegar tekin með um næstu helgi, en þá verður ferðast um Norðurey eins og mér skilst að Vestmanneyjingar kalli klakann. Ætlunin er að skreppa í ÍTR grillveislu á föstudaginn í Svínadal og svo lengra í von um að rekast á vaska norðlendinga á sínum fjallabíl. Já, Heimanmundurinn er sko í fullri aksjón þessa dagana.


þangað til næst

- mundi | 22:40
Umræður

Umræður




Remember Me?





Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið