Þriðjudagur 2. júní

Hvítasunnan 2009

tn_IMG_3239.jpg


Við brugðum undir okkur betri fætnum og stóru dekkjunum um hvítasunnuna og gerðum víðreist. Það var alveg svakalega gaman hjá okkur. Það byrjaði með sumarbústaðarferð með Jóni og Guðrúnu. Það klikkar ekki að koma að Hlíðarenda og maður skilur hversvegna fyrri ábúendur vildu ekki fara rassgat. Eftir góða stund í bústaðnum og smá flandur um suðurlandið skildu svo leiðir og við héldum áfram til suðurs.


Þakgil var skoðað en svo fórum við torleiða um Svínatungur að Heiðarvatni. Þarna við Kötlurætur er gífurleg fegurð og landslag hrikalegt. Þarna gistum við eina nótt. Daginn eftir dóluðum við okkur í átt að Geysi þar sem nýútskrifaður leiðsögumaður tók á móti okkur og sýndi snilli sína í leiðsögn um svæðið. Jón Örvar sýndi okkur markverðustu staði svæðisins, hótelið, Haukadalsskóg og skemmtilega leynistaði hér og þar. Seint um kvöld keyrðum við í átt að Brúarárskörðum og grilluðum okkur miðnætursnarl, skriðum í tjald, lásum bændablaðið og fórum að sofa.


Mánudagurinn fór svo í gönguferð um Brúarárskörð en þar er mjög gaman að koma. Svipmyndir helgarinnar eru hér meðfylgjandi.


Frábært!!

- mundi | 22:52
Umræður

Torfi:

Það held ég að sé fínt alltsaman...

(04.06.09 09:31)

Heiða í Sviss:

Oohhhh það er svo ótrúlega gaman að fylgjast með ykkur!!! Það sem þið eruð dugleg að skoða og gera margt skemmtilegt!!! Snillingar...verður ekki of oft sagt! Gros bisous frá mér í Sviss;)

(04.06.09 19:20)

baddy:

sammála síðasta skrifara, þið eruð ótrúlega dugleg að ferðast um og skoða landið. Er hægt að panta leiðsögn hjá ykkur?:)

(23.06.09 22:10)

Mundi:

já það er sko ekki málið... :)

(23.06.09 23:04)

Umræður




Remember Me?





Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið