Gengið umhverfis Hvalfell

Á föstudaginn síðasta að vinnudegi loknum lögðum við land undir fót með Guðna og Gauta. Við gengum hringinn í kring um Hvalfell í Hvalfirði. Við tjölduðum "fyrir aftan" fjallið við Hvalvatnið og kláruðum hringin morguninn eftir. Þetta er ofsalega falleg leið og hvorki löng eða erfið.
Um nóttina fór hitastigið niður í frostmark og það er náttúrulega magnað þann 20. júní
Næstu tvær helgar verður svo lítið gengið. Nú eru brúðkaup og ættarmót framundan.