Sunnudagur 24. maí

Hellaskoðunarferð í Búra

tn_DSC02348.JPG


Var verkefni dagsins í dag. Við nutum leiðsagnar Björns Hróarssonar hellafræðings og gaf það ferðinni sannarlega aukið gildi. Góð leiðsögn er jú ómetanleg!! ;)


Hellirinn Búri er í Leitarhrauni skammt frá hinni nýju vatnsátöppunarverksmiðju sem Jón Ólafsson er í forsvari fyrir. Þetta er víst með stærri hraunhellum og þótt víða sé leitað. Við gengum rúman kílómeter inn í hann en þar endar hann í stórum svelg sem er um 5 metar í þvermál. Hellirinn sjálfur er stór á köflum, það eru sumsstaðar stórir salir með 10 metra lofthæð en annarsstaðar þarf að skríða þar sem hrun hefur nánast lokað leiðinni. Alger snilldarferð og heillandi heimur sem þarna er undir fótum okkar.


ps. við urðum að haldafyrir endurskinið á gallanum hennar Svanhildar svo hægt væri að mynda!

- mundi | 22:58
Umræður

Torfi:

... einhvernveginn datt mér ekki í huga að verið væri að hylja merkin á gallanum... mér datt í huga, tre...tur

(25.05.09 12:56)

sara hrund:

ahha... þessi mynd er algert kast.. ég horfði lengi á hana og var alveg.. hvað hvað hvað er að gerast eiginlega..voðalega eru þetta skringilega stellingar hjá þeim.
en jæja. hellaferðin lítur afar skemmtilega og innlokunakenndarlega út.
kveðja
frá hellalausa landinu :)
sara hrund

(31.05.09 09:36)

Heiða í Sviss:

Snillingarnir ykkar;) hahahaha þessi mynd er annars algjör snilld...mér datt engan veginn í hug að verið væri að fela endurskinsmerkin þarna...fyndin mynd og þið alltaf jafn sæt og fín:) bisous héðan frá sviss

(01.06.09 17:59)

Umræður




Remember Me?





Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið