Sunnudagur 19. október

Búðir á Snæfellsnesi

tn_DSC02117.JPG


Á föstudaginn var farið eftir vinnu á Snæfellsnesið og við borðuðum og gistum á Hótel Búðum. Var þessi för farin með Jóni og Guðrúnu. Skemmtum við okkur alveg gríðarlega vel, enda ekki annað hægt þegar borðaður er góður matur og drukkin góð vín með góðum vinum. Ekki skemmdi heldur fyrir að lenda á einkatónleikum með Geir Ólafssyni og hljómsveit en þeir fóru hreinlega á kostum. Geir söng meðal annars lagið ó borg mín borg, á ítölsku með gríðarlegu óperuívafi. Það mun seint gleymast.


Á laugardagsmorgninum röltum við aðeins um svæðið og hér eru 3 myndir frá gönguförinni stuttu.


- mundi | 22:15
Umræður

benoit:

rosalega flott mynd!!!

(24.10.08 19:31)

sara hrund:

rosalega fallegt allt saman.. enda ofsalega fallegt umhverfi og varla hægt að klúðra myndatöku á slíkum stað.. nema að maður heiti hlalla stóra og taki bara myndir af fólk fra tám uppað hálsi.. en hvað um það.. þið eruð ekki hlalla stóra

bestu kveðjur
sara hrund

(29.10.08 13:44)

baddy:

sæll bróðir og mágkona. Svakalega flott mynd, litirnir alveg einstakir og eitthvað svo rómantískt við svona snjóföl í fjöllunum og staðurinn alveg dásamlegur. Ég vona að kreppan sé ekki að fara illa með ykkur - eru ekki einhverjir sem þurfa enn að láta mála fyrir sig?

(07.11.08 20:31)

Umræður




Remember Me?





Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið