Miðvikudagur 13. ágúst

Brúðkaupið 19. júlí

tn_File_054.JPG


Hér á síðunni hefur ekkert gerst lengi. En nú rjúfum við þögnina .


Svo að við byrjum nú á byrjuninni, þá langar okkur að þakka fjölskyldu okkar og vinum kærlega fyrir helgina 19.-20. júlí síðastliðinn. Brúðkaupið okkar þann 19. fannst okkur alveg frábært og það er nú af því að þið voruð þarna með okkur.


Þennan dag lögðu margar hjálpsamar hendur hönd á plóg og gerðu þannig daginn ógleymanlegan fyrir okkur. Það var sama hvað var, allir voru reiðubúnir að leggja sitt af mörkum til að láta allt ganga upp. Þið eruð snillingar.


Í ofanálag fengum alveg heilmikið af fallegum gjöfum sem allar með tölu hittu beint í mark. Enn viljum við þakka ykkur öllum vel og mikið fyrir.


Eitthvað ætla ég nú að birta af myndum hérna á myndasíðunni . Bæði frá brúðkaupinu og eins líka frá frækinni brúðkaupsferð okkar sem var í tveim hlutum. Sá fyrri var þriggja daga gönguferð um utanverðan Eyjafjörð, frá Grenivík um Látraströnd til Flateyjardals. Seinni hlutinn var svo farinn á Heimanmundinum en þá var hálendið skoðað gaumgæfilega gangandi og út um glugga.


Enn og aftur Takk Takk kærlega vel fyrir okkur.

- mundi | 18:50
Umræður

Heiða í Sviss:

Innilega til hamingju með daginn ykkar:) Æðisleg myndin hérna við færsluna...ég ætla núna að kíkja á allar hinar myndirnar! Bisous frá Sviss

(16.08.08 19:37)

Ziggy Flotti:

Til lukku með þetta framtak. Megi ykkur farnast sem best í hjónabandinu!

Hvenær kemur svo krakkinn :-)

(16.08.08 20:41)

Asdis&Benoit:

Vá! Enn og aftur til hamingju! Þið eruð svo mikið æði! Myndirnar eru frábærar og þið ekkert smá flott! Meiriháttar flottur kjóllinn og fallegt veður sem þið fenguð :)

Gaman að sjá myndir þar sem við gátum ekki verið með ykkur...

Hafið það gott kæru vinir,
Ásdís og Benoit

(17.08.08 17:57)

Fanney:

Hæ hæ til hamingju aftur og takk fyrir okkur. Þetta var svakalegt partý og þið svona rosalega flott. Við ætlum svo að innheimta þetta matarboð næst þegar við verðum í borginni þannig að setjið ykkur í viðbragðsstöðu.....

Hafið það gott
Fanney og Kiddi

(18.08.08 13:56)

Svanhildur:

Takk æðislega fyrir allar kveðjurnar.
Fanney og Kiddi, við hlökkum til að fá ykkur í mat.

(18.08.08 19:46)

Torfi:

Kaupið var gott... menn náttúrulega tognuðu - en ekki á upphitun, heldur í hita leiksins.

12. stig.

(09.09.08 14:50)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið