ágúst 13, 2008

Brúðkaupið 19. júlí

tn_File_054.JPG


Hér á síðunni hefur ekkert gerst lengi. En nú rjúfum við þögnina .


Svo að við byrjum nú á byrjuninni, þá langar okkur að þakka fjölskyldu okkar og vinum kærlega fyrir helgina 19.-20. júlí síðastliðinn. Brúðkaupið okkar þann 19. fannst okkur alveg frábært og það er nú af því að þið voruð þarna með okkur.


Þennan dag lögðu margar hjálpsamar hendur hönd á plóg og gerðu þannig daginn ógleymanlegan fyrir okkur. Það var sama hvað var, allir voru reiðubúnir að leggja sitt af mörkum til að láta allt ganga upp. Þið eruð snillingar.


Í ofanálag fengum alveg heilmikið af fallegum gjöfum sem allar með tölu hittu beint í mark. Enn viljum við þakka ykkur öllum vel og mikið fyrir.


Eitthvað ætla ég nú að birta af myndum hérna á myndasíðunni . Bæði frá brúðkaupinu og eins líka frá frækinni brúðkaupsferð okkar sem var í tveim hlutum. Sá fyrri var þriggja daga gönguferð um utanverðan Eyjafjörð, frá Grenivík um Látraströnd til Flateyjardals. Seinni hlutinn var svo farinn á Heimanmundinum en þá var hálendið skoðað gaumgæfilega gangandi og út um glugga.


Enn og aftur Takk Takk kærlega vel fyrir okkur.

-mundi | 18:50 | Comments (6)





Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið