Miðvikudagur 23. apríl

Helgar eru snilld

Núna undanfarið hefur hver helgin á eftir annarri verið hverri annarri betri. Nokkrar helgar í röð var farið á skíði í Skálafelli í glampandi sól, svo var farið á gönguskíðum upp á Skjalbreið í enn meiri sól (sem leiddi reyndar til mikils andlistsbruna en ferðin á Skjaldbreið var engu að síður fullkomin). Svo hófst þarsíðasta helgi með því að mamma hringdi í okkur eftir vinnu á föstudegi og bauð okkur Munda út að borða með þeim Hörpu og Gauta. Svo eyddi Mundi laugardeginum á skíðum (en ég þurfti aðeins að vinna) og um kvöldið vorum við svo boðin í svakalegt matarboð í Hafnarfirðinum þar sem steikurnar voru svo stórar að ég efast um að þær finnist stærri, jafnvel þótt maður leiti í Ameríku. Eftir mikið ofát var svo melt og spjallað þar til líkaminn var tilbúinn til að takast á við Sálarball. Vá hvað það var gaman, við dönsuðum og sungum allt ballið, þvílíkt stuð! Á sunnudagskvöldinu fórum við svo á tónleikana með Rufus Wainwright sem voru alveg æði.


Síðasta helgi var svo ekki síðri en þá drifum við okkur út úr bænum eftir vinnu á föstudegi og fundum okkur fallegan tjaldstað á Reykjanesinu. Ég veit fátt betra en að komast svona aðeins burt og út í náttúruna og maður þarf ekki alltaf að vera að fara eitthvað langt. Ástæðan fyrir því að við fórum svona stutt var að við þurftum að vera komin í bæinn kl. 18 á laugardeginum en áður en heim var haldið kíktum við á Saltfisksetrið í Grindavík og löbbuðum svo um Selatanga þar sem eru miklar rústir gamalla verbúða sem er gaman að skoða og veðrið var líka alveg æði. Á laugardögskvöldinu var svo kennarapartý og mikið stuð og eftir smá tiltekt og hressingargöngu í Öskjuhlíð borðuðum við Raclette í Lækjarhjallanum og fórum svo í leikhús að sjá Vígaguðinn, sem var hin fínasta skemmtun og leikararnir allir alveg frábærir. Þessi helgi var því ekki síðri en sú sem á undan fór.


Núna um helgina er svo árshátíð ÍTR og þar verður án efa mikið stuð.

- Svanhildur | 12:46
Umræður

Fanney:

úff maður verður bara þreyttur á að lesa þetta.. það er aldreilis sem þið eruð alltaf að. Þið megið alveg gefa eitthvað af þessari orku til mín og Kidda því við hefðum gott af smá orkuskoti.

(23.04.08 22:17)

Torfi:

Það munar ekki um það... mínar helgar eru meira litaðar að gönguferðum með barnavagn.

Misjafnst hafast mennirnir að.

(03.05.08 09:17)

Fanney:

Hæ hæ
Ég vildi bara þakka fyrir boðskortið og gera eins og einn merkur maður gerði ekki fyrir svo löngu og boða komu mína :) ....
Heilsur í bæinn...

(14.05.08 09:58)

Umræður




Remember Me?





Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni