apríl 23, 2008

Helgar eru snilld

Núna undanfarið hefur hver helgin á eftir annarri verið hverri annarri betri. Nokkrar helgar í röð var farið á skíði í Skálafelli í glampandi sól, svo var farið á gönguskíðum upp á Skjalbreið í enn meiri sól (sem leiddi reyndar til mikils andlistsbruna en ferðin á Skjaldbreið var engu að síður fullkomin). Svo hófst þarsíðasta helgi með því að mamma hringdi í okkur eftir vinnu á föstudegi og bauð okkur Munda út að borða með þeim Hörpu og Gauta. Svo eyddi Mundi laugardeginum á skíðum (en ég þurfti aðeins að vinna) og um kvöldið vorum við svo boðin í svakalegt matarboð í Hafnarfirðinum þar sem steikurnar voru svo stórar að ég efast um að þær finnist stærri, jafnvel þótt maður leiti í Ameríku. Eftir mikið ofát var svo melt og spjallað þar til líkaminn var tilbúinn til að takast á við Sálarball. Vá hvað það var gaman, við dönsuðum og sungum allt ballið, þvílíkt stuð! Á sunnudagskvöldinu fórum við svo á tónleikana með Rufus Wainwright sem voru alveg æði.


Síðasta helgi var svo ekki síðri en þá drifum við okkur út úr bænum eftir vinnu á föstudegi og fundum okkur fallegan tjaldstað á Reykjanesinu. Ég veit fátt betra en að komast svona aðeins burt og út í náttúruna og maður þarf ekki alltaf að vera að fara eitthvað langt. Ástæðan fyrir því að við fórum svona stutt var að við þurftum að vera komin í bæinn kl. 18 á laugardeginum en áður en heim var haldið kíktum við á Saltfisksetrið í Grindavík og löbbuðum svo um Selatanga þar sem eru miklar rústir gamalla verbúða sem er gaman að skoða og veðrið var líka alveg æði. Á laugardögskvöldinu var svo kennarapartý og mikið stuð og eftir smá tiltekt og hressingargöngu í Öskjuhlíð borðuðum við Raclette í Lækjarhjallanum og fórum svo í leikhús að sjá Vígaguðinn, sem var hin fínasta skemmtun og leikararnir allir alveg frábærir. Þessi helgi var því ekki síðri en sú sem á undan fór.


Núna um helgina er svo árshátíð ÍTR og þar verður án efa mikið stuð.

-Svanhildur | 12:46 | Comments (3)

apríl 2, 2008

Laugardagur í sólinni

tn_IMG_0566.JPG


Laugardaginn síðasta lá Svanhildur heima með flensuna. Ég, Georges og Beta ætluðum hins vegar að skella okkur á skíði í Skálafell en þar var lyftan biluð svo við gerðum bara smá jeppaferð úr þessu. Þarna eru Galdrahopparinn og eigandi hans næstum komnir á toppinn á Skálafelli. Svo fékk ég pylsu á Þingvöllum og við fórum heim.

-mundi | 22:09 | Comments (3)





Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni