mars 24, 2008

Yfir móðuna miklu

tn_IMG_0531.JPG


Til þess að komast af skerinu og til baka aftur þarf oft að fara yfir mikla móðu. Þessu ágæta dæmi náði ég á filmu á leið okkar heim frá stórgóðri ferð okkar til Danmerkur. Þaðan komum við í gær eftir að hafa átt viku frí, tvo daga í Kuben og svo vorum við í Billund hjá mömmu og pabba. Þetta var alveg stórfín og vel heppnuð algerlega afslöppuð ferð.

Nokkrar myndir frá ferðinni eru komar í albúmið okkar og má nálgast hér til hliðar.

-mundi | 18:07 | Comments (2)

mars 13, 2008

Síða í dauðateygjunum?

Já, er nema vona að fólk velti því fyrir sér. Það hefur verið lítið um að vera hérna undanfarið og spurning hvort maður játi sig ekki bara sigraðan og hætti þessu. Ég bara finn ekki hjá mér þörfina til að blogga svona þegar maður er fluttur á klakann og farin að gera allt þetta "venjulega" "dags daglega".


Það er samt alltaf nóg um að vera svo ég ákvað að koma með smá færslu núna og segja ykkur frá því að við erum búin að fara á skíði í Skálafell síðustu tvo laugardaga og það hefur verið alveg meiriháttar, maður skellir sér bara vonandi aftur nú um helgina. Annars er helgin frekar þétt bókuð. Bjössi og Sísý koma til okkar í kvöld og eru búin að panta gistingu í Hamrahlíðinni yfir helgina. Annað kvöld verður svo sjö manna matarboð og af því loknu ætla allir að skella sér á afmælistónleika Sálarinnar. Það verður pottþétt mikið stuð. Svo eru það vonandi bara skíði á laugardaginn og svo Köben á sunnudagsmorgun, en þar ætlum við að stoppa í tvo daga á leið til Billund í heimsókn til tengdó.


Já mann vantar sko ekki eitthvað til að hlakka til þessa dagana.

-Svanhildur | 11:15 | Comments (0)





Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni