Fimmtudagur 1. nóvember

Að eiga erindi

Nú langar mig að eiga við ykkur erindi.


Ég tel mig sannan landsbyggðarmann, og þar af leiðandi vil ég veg þeirra sem ekki hafa kosið sér að búa hér á suðvesturhorninu sem mestan. Ég vil t.d. hafa flugvöllinn í vatnsmýrinni, þó ekki væri nema til þess að flýta fyrir flutningi sjúkra á landspítalann. Það eitt þykja mér næg rök. En einnig er megnið af stofnunum ríkissins og annarri stjórnsýslu staðsett í nágrenni núverandi vallar. Ég tel hins vegar að sundabraut sé meira aðkallandi en héðinsfjarðargöng. Göng sem þjóna góðu fólki, en bara fáu og eru þar að auki boruð í ranga átt ef einhver spyr mig álits.


En ég ætlaði nú ekki bara að tala um þetta. Heldur langaði mig að reyna að bera saman muninn á því að búa út á landi eða hér. Ég held nefnilega að helsti munurinn sé sá og jafnvel sá sem veldur Reykjavíkurfordómum, hjá sumum af mínum vinum, að þegar við sem hér búum bregðum undir okkur betri fætinum og förum út á land þá er það gjarnan til þess að fara í frí eða stunda einhver áhugamál, skíði eða veiðar eins og í mínu tilfelli. Oft gefst þá tími til að gera þessa hluti með vinum eða hitta þá á tímanum. Þó sannarlega heppnist það ekki alltaf að hitta alla.


Ef að maður aftur býr út á landi og kemur til Reykjavíkur þá er það gjarnan gert með því að koma á föstudagskvöldi akandi eftir vinnu eða jafnvel á föstudagsmorgni. Því föstudaginn á að nota til að útrétta. Svo sprengja menn um eins og brálæðingar einmitt á þeim degi sem umferð er hvað þyngst. Hér búa margir. Rata jafnvel illa og þekkja ekki stystu leiðir. IKEA alveg stöppuð og engin bílastæði við kringluna. Laugardagurinn fer að lunganum til í það að klára smáralindina og kíkja í bílaumboð eða eitthvað þvíumlíkt. Héðan úr borg óttans fara menn svo þreyttir og stressaðir heim, skiljandi ekkert í því hvernig hér sé hægt að búa.


Þessu vil ég snúa við. Af hverju kemur fólk svona sjaldan utan af landi hingað í þeim einum tilgangi að lyfta sér upp. Það má fara í keilu, leikhús, fara á tónleika, út að borða eða bara eitthvað í þeim dúr. Hanga jafnvel bara. Landin flykkist í slíkar ferðir til Kuben og London í það minnsta, hefur þetta einhverntíman verið reynt hér? Er ég að vaða reykinn eða er ekki eitthvert sannleikskorn í þessu??


Hér hjá okkur í Hamrahlíðinni er auka-herbergi og gestir ávallt velkomnir. :)


ps. það skal ítrekað að mér finnst sjálfum alltaf best í sveitinni.

- mundi | 21:56
Umræður

sara hrund:

já. ég held að ég sé bara sammála þér Mundi. Held líka að ég hafi ekki heyrt pælingar varðandi þetta áður, sem er bara gaman.

bæbæ

(01.11.07 22:30)

Óli Helgi:

Ég held að þú hafir sjálfur svarað spurningunni í síðustu línunni í blogginu, annars skal ég reyna að gera það sjálfur hér. Nú göngum við út frá því að það sé gott og gaman að búa úti á landi, það er ekki erfitt að sannfæra fólk um það, það veit hver heilvita maður sem hefur prófað að búa í borginni og úti á landi. Þess vegna þurfa menn að hafa andskoti góða ástæðu til að rífa sig upp úr sælunni og storma í borg óttans. Og þar sem að landsbyggðarfólkið þráir ekkert annað en að komast aftur í sæluna þá reynir það að pakka eins miklu og það mögulega getur í eina helgarferð, eins og þú sagðir, Kringlan, Smáralind, IKEA, bílaumboðin o.s.frv. svo að það þurfi ekki að stíga fæti inn fyrir borgarmörkin a.m.k. næsta hálfa árið. Varðandi leikhús og menningarviðburði, á þessum 8 árum sem ég bjó í Reykjavík fór ég afar sjaldan í leikhús, af og til í bíó og sótti aðra menningarviðburði frekar lítið. Hinsvegar reikna ég með því að fara oft í Leikhúsið á Akureyri þegar ég flyt þangað næsta sumar og gæti alveg hugsað mér að stunda menningarviðburði þar í meira mæli en í borginni. Veit ekki af hverju, og veit ekkert hvort að ég kem til með að standa við þessi orð, hef þetta bara á tilfinningunni. En þar sem að ég er ekki mikil listaspíra, og hef meira gaman af því að stunda veiði, fara í golf, heimsækja vini og vandamenn, þá held ég að ég komi til með að detta alveg í þennan gír sem að þú lýsir í blogginu. Fer bara í borg óttans ef að það er brýn nauðsyn fyrir því ;)

(02.11.07 09:19)

torfi:

Flugvöllinn kyrran !!!!

... ég sé að þessum skrifum að það er kominn tími á einn Eyjafjarðar, heimsmálatúr :-)

(04.11.07 13:16)

Mundi:

Gaman að heyra frá ykkur með ykkar skoðanir á þessu. Mig langar aðeins að bæta við, meðal annars vegna þess sem Óli var að skrifa. Hann heldur að hann verði duglegri að stunda leikhús þar sem þau eru færri og framboð leikverka og sýninga er minna. það er líklega ekki rétt hjá honum.


Annað en enn tengt leikhúsi. Akureyringum finnst alveg fullkomlega eðlilegt að fólk flykkist upp í flugvélar og komi norður, éti hjá Friðrik og fari svo í samkomuhúsið að sjá eitthvað gott hjá LA. Sannarlega frábært, en ef að það á að snúa þessu við þá er þetta eitthvað hálfómögulegt og engin bílastæði.

(04.11.07 13:42)

Bjössi:

heyrðu Mundi, þetta höfuðhögg sem þú fékkst þarna um daginn, það var alvarlegt....bara svona ef þú ert ekki búinn að átta þig á því...;)

(04.11.07 17:09)

Bjössi:

heyrðu Mundi, þetta höfuðhögg sem þú fékkst þarna um daginn, það var alvarlegt....bara svona ef þú ert ekki búinn að átta þig á því...;)

(04.11.07 17:10)

Mundi:

Mér sýnist komment síðasta ræðumanns skjóta stoðum undir mál mitt. Ef að maður minnist á þessi mál út frá þessu sjónarhorni sem ég hef gert, þá hlýtur nátturúlega eitthvað að vera að manni! :)

(05.11.07 16:03)

Óli Helgi:

Jahh Mundi. Við skulum sjá til. Það sem ég var að reyna að koma á framfæri er að það er svo margt sem spilar inn í þegar menn reyna að fá fólk til að heimsækja menningarviðburði. Ég held t.d. að ég komi til með a sjá Sverrir skólabróðir minn ansi oft á fjölum Freyvangs einfaldlega vegna þess að ég hef gaman af því að sjá hann leika. Ég held að framboðið og úrvalið á sýningum sé ekkert endilega úrslitaatriði og svo er rétt að benda á að þegar maður á barn sem er kominn á aldur til að sjá leiksýningar þá komum við ábyggilega til með að fara oftar öll saman í leikhús heldur en bara ég og Dagný. Og þegar um barnasýningar er að ræða...þá er úrvalið ekkert úrslitaatriði, ef að hinir krakkarnir eru búnir að sjá e-ja sýningu þá verða hinir líka að sjá hana. Anyhú! Vildi bara koma þessu á framfæri, er ábyggilega kominn langt út fyrir efnið.

(06.11.07 09:05)

Sísý:

Ef ég tala bara út frá minni upplifun þá er hún sú að þegar ég fer í borgina þá er það til að sinna ákveðnum erindum sem ekki er unnt að sinna úti á landi á jafn skilvikan máta. Stundum eru það námskeið vegna vinnunar þar sem maður situr um 8klst á dag og er síðan alveg "heiladauður"á eftir og nennir engu. Stundum eru það ferðir í hjóla-eða bílaumboð það er satt. Þær ferðir eru oft ákveðnar með litlum fyrirvara og jafnvel búið að plana e-ð annað hér heima fyrir helgina. Þá er stokkið suður og aftur norður til að ná að klára að gera e-ð af því sem maður hafði ætlað sér um helgina. Ef við tölum um síðustu ferð suður þá var það til að kíkja á bíl. Einn punktur er sá að margt fólk vinnur aðra hvora helgi og reynir því að verja sem mestum tíma heima hina helgina. Hvað varðar menningarviðburði þá höfum við gert að mér finnst talsvert af því að fara til Reykjavíkur á tónleika og nokkrum sinnum í leikhús. Ekkert af þessu er þó gild ástæða til að vanrækja vináttubönd og legg ég til að við gerum ALVÖRU ÚR að gera bragabót á! Skoða má að skreppa á jólahlaðborð, skipuleggja formlega vinahitting, fara saman í sumarhús eða annað álíka.

(06.11.07 15:14)

Fanney:

Sammála þessu flestu, nema kanski þessu með Héðinsfjarðargöngin en ég er kanski lituð í þeim málum.. ekki nánar út í það...
Annars hef ég búið í Rvk eins og þú veist og nýflutt í sæluna á Akureyri. Ég kom til Rvk um daginn, tek það fram á miðvikudegi.. ekki búin að vera í borginni í 12 tíma þegar ég mundi af hverju það var sem ég flutti norður. Sorry ég fór ekki mikið á menningarviðburði í Rvk, ekki í bíó eða neitt og ég bjó þarna í nokkuð mörg ár. Veit ekki hvort þetta er Akureyri eða hvað en síðan ég flutti hingað í Júlí þá hef ég farið í bíó, oft út að borða, í kokteil og leikhús. Ég hef aldrei verið eins menningarleg áður. Ég hef samanburð við Rvk og ég sé ekki eftir því að hafa flutt, Rvk bara aðeins of mikið fyrir mig til að búa í en svo auðvitað kemur maður þangað og gerir allt á einu bretti og keyrir svo á ólöglegum hraða út úr Mosó til að sleppa undan "borg óttans"...
Bið að heilsa í borgina, minni á að í Urðargilinu er líka gestaherbergi og stór lóð til að tjalda á.

(15.11.07 12:09)

Magni:

Gerði þetta um síðustu helgi. Fólkið sem ég var með var skemmtilegt og er það hvar sem er í heimi, en borgin var samt sem áður leiðinleg. Kannski eru þetta fordómar.

(29.11.07 17:23)

baddy:

ég er algjörlega sammála því að flugvöllurinn á að vera í vatnsmýrinni og það aðallega til að landsbyggðin hafi aðgang að landspítalanum og þeirri þjónustu sem í kringum sjúkrahúsið er.
Ég er greinilega eitthvað öfugsnúin við ykkur hin því mér finnst oft gott að fara suður til að fá smá hvíld frá akureyri! Jú það er ágætt að geta farið á milli staða á 5-10 mín eins og maður gerir hér á akureyri en ef maður veit að umferðin er hrikaleg (eins og í borg óttans) þá gefur maður sér bara aðeins meiri tíma - ef maður er að stressa sig þá verður allt mun erfiðara.
ég efa ekki að "út á landi" sé góður staður fyrir fjölskyldufólk sem vill hafa lífið í föstum skorðum og finnst gott að vera hér en eftir að hafa verið í skólanum á akureyri á veturna og kynnst öllu því sem bærinn hefur upp á að bjóða þá bara verð ég að flýja eitthvert annað þess á milli. ég er algjörlega komin með leið á greifanum og hinum veitingastöðunum, þrátt fyrir að ég fari ekki mjög oft á slíka staði. fatabúðirnar hérna eru ekki að mínu skapi - en það lagast vonandi með nýju glerártorgi en leikhúsið hérna er svo sannarlega að rísa frá því sem var og hef ég farið á all margar leiksýningar hér.
en ég hef mjög gaman af því að skreppa í borgina og hef reynt að haga verknáminu mínu þannig að ég yfirgefi höfuðstað norðurlands og fari á önnur mið og er reykjavík þá oft ofarlega á lista og ekki bara út frá lærdómssjónarmiði heldur líka til að kíkja í búðir í rólegheitunum, hitta gott fólk og kíkja út á lífið - þar sem ég get valið um fleiri en 3 sæmilega staði þar sem ég er ekki alltaf að hitta sama fólkið aftur og aftur!!
þannig að það eru ekki allir sem bruna í gegnum borgina - ná í það sem til þarf og bruna svo beint út aftur.

(18.12.07 15:14)

sara hrund:

jæjaaaaaa....hefur ekkert markvert gerst hjá ykkur síðan 1. nóvember? eruði bara búin að stara á vegginn síðan þá?
ég ætla nú samt að halda í vonina að þið haldið þessu áfram, þó ég viti nú alveg að maður fær svona nett bloggógeð stundum. kannski er bara best að hætta þessu..spurning.
sjáumst
kveðja
sara hrund

(19.12.07 09:43)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni