september 29, 2007

tn_DSC00694.JPG

-mundi | 14:13 | Comments (3)

september 17, 2007

Nú bar vel í veiði

tn_DSC00859.JPG


Það þarf ekkert að orðlengja það að Mývatnssveitin er æði. Bestu þakkir fá Gautlandabændur og veiðifélagar. Þvílík helgi.

-mundi | 20:34 | Comments (7)

tn_DSC00845.JPG

-mundi | 20:33 | Comments (1)

september 13, 2007


september 11, 2007

Vöðlur

Á einhver vöðlur sem eru minni en stærð 45 (Munda vöðlur) sem vildi vera svo afskaplega yndæl(l) að lána mér þær næstu helgi?

-Svanhildur | 08:52 | Comments (2)

september 1, 2007

Nóg að gera

Nú er Mundi í gæsum og ég á leið á ættarmót. Hann og Magni mældu sér mót uppi á hálendinu á föstudaginn og voru báðir eins og litlir krakkar að bíða eftir jólunum á fimmtudaginn. Það er ábyggilega mjög gaman hjá þeim.


Það stefnir allt í að það verði nóg að gera í vetur þar sem ég var að enda við að ráða mig í fjórðu vinnuna mína. Auk þess að vera í 80% starfi við að kenna frönsku í MS er ég komin í rétt rúmlega 30% starf hjá ÍTR á frístundaheimilinu Vogaseli. Þangað fer ég fjóra daga vikunnar eftir kennslu og passa krakka í 1.-4. bekk þangað til foreldrarnir eru búnir að vinna. Nú er ég búin að vera rúma viku í báðum þessum störfum og líkar ofsalega vel. Kennslan gengur vel (alla vega enn sem komið er) og margt spennandi á dagskrá í Vogaseli, þar sem ég hef meðal annars umsjón með Ævintýraklúbbi fyrir elstu börnin og Söng- og leikjaklúbbi sem er öllum opinn.


Svo er ég alltaf að bera út Moggann en er nú eiginlega búin að taka þá ákvörðun að halda því bara út árið og hætta svo. Ekki síst vegna þess að það var hringt í mig úr Alliance Francaise í fyrradag (en ég er einmitt líka í stjórn Alliance francaise) og mér var boðin kennslustaða þar. Þótt þetta sé ekkert vel borgað og ég hafi nú þegar nóg að gera í þessum vinnum mínum og björgunarsveitinni þá langaði mig svo mikið að prufa að kenna fólki sem er bara að læra af áhuga (ekki bara af því það þarf að ná sér í stúdentspróf) svo að ég samþykkti að taka að mér kennslu á mánudags- og miðvikudagskvöldum.


Það verður sem sagt nóg að gera og allt eru þetta svaka spennandi verkefni og þetta verður örugglega alveg ofsalega skemmtilegur vetur ef ég hef bara næga orku í þetta allt. Einhverjir hafa nú verið að spyrja mig hvenær ég hafi eiginlega tíma til að sinna Munda og það verður að segjast eins og er að það gefts ekki mjög mikill tími í það, en ég hef þó aðra hvora helgi lausa og svo flest fimmtudagskvöld, það er til kl. 22. þar sem ég fer alltaf svo snemma að sofa því ég þarf að vakna klukkan 6:10 til að bera út :-)

-Svanhildur | 10:57 | Comments (4)





Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni