ágúst 29, 2007

Langar þig ekki að byrja í björgunarsveit í vetur?

Ef svo er þá mæli ég með því að þú kíkir á nýliðakynninguna hjá FBSR á mánudaginn eða þriðjudaginn í húsi sveitarinnar við Flugvallarveg kl. 20. Meiri upplýsingar má finna hér


Þetta er rosa skemmtilegt og maður lærir alveg fullt af þessu. Ef þú hefur gaman af útivist, fjallgöngum, bakpokaferðum, gönguskíðaferðum, hefur gaman af því að taka vel á því öðru hvoru og langar til að læra hluti eins og skyndihjálp, næturrötun, klifur, ísklifur o.s.frv. þá er þetta eitthvað fyrir þig.


Vonast til að sjá einhver kunnugleg andlit á fundunum í næstu viku.

-Svanhildur | 13:44 | Comments (1)

ágúst 15, 2007

Eldhúsið ógurlega

tn_DSC00163.JPG

þarna má sjá hvað ég hef dundað mér við undanfarið. reyndar sést nú bara helmingurinn þarna en myndirnar ættu að gefa einhverja hugmynd um hvað hefur gengið á.


svo er bara mikil vinna framundan, þetta skiptið ekki í eigin húsi.

-mundi | 22:19 | Comments (5)

tn_DSC00138.JPG

-mundi | 22:18 | Comments (2)

ágúst 6, 2007

Smíðað, málað og tölvast

Allt gott að frétta úr hamrahlíðinni. Hér hefur verið smíðað og málað þessa verslunarmannahelgina. Mesta smíðavinnan í eldhúsinu búin, nú á bara eftir að skipta út borðplötunum, saga úr fyrir nýjum vask og smíða eitt þil vinstra megin við uppþvottavél.

Jú og svo á eftir að lakka síðustu umferð á innréttinguna, mála veggina, breyta pípulögn lítillega, setja upp lýsingu milli bekkja og snurfusa.


en það er mikið búið.


...og svo dó tölvan okkar og kemur þessi færsla því úr gömlu tóshíbunni okkar. Hún virkar, bara mun, mun hægar. Snillingurinn hann Jói er að hjálpa mér að reyna að keyra nýrri vélina upp aftur og ég vona að það gangi einhverntíman á næstunni. Ef að Jói getur ekki reddað þessu þá getur það enginn.


bless í bili

-mundi | 18:54 | Comments (3)





Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni