Þriðjudagur 3. júlí

Þurrkari

Þegar við Mundi fluttum út til Frakklands komum við megninu af dótinu okkar fyrir í geymslu en lánuðum vinum og vandamönnum ýmis heimilistæki sem gátu komið öðrum að góðum notum á meðan við vorum í burtu. Nú þegar heim er komið og maður fluttur í húsnæði þar sem pláss er fyrir heimilistæki fer maður að rifja upp hverjum maður lánaði hvað og þetta rifjast svona smá saman upp fyrir okkur, ja nema þurrkarinn, við munum ekki alveg hver fékk hann, svo að viðkomandi má gjarnan gefa sig fram.

- Svanhildur | 11:06
Umræður

Bjössi:

hahahahhaha, fékk ekki Torfi hann?

(04.07.07 16:13)

mundi:

þessi auglýsing hennar svanhildar kom frú margréti á sporið en hún mundi hvar apparatið var niður komið.


það var nú meira en ég - sem áttaði mig á því allt í einu að það var ég sem fór með það þangað!!!.... úfff...

(04.07.07 18:29)

Torfi:

... ég var með hann fyrst en svo afsalaði ég mér honum... við skulum því halda skósmiðum alveg utan við þetta mál.

góðar stundir

(05.07.07 14:24)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni