Föstudagur 20. júlí

Það er líf

tn_DSC00555.JPG

Hér hefur sannarlega verið lítið að gerast undanfarið. Það er hins vegar í hrópandi ósamræmi við það sem hefur verið að gerast hjá okkur, og ber ég því fyrir mig sem afsökun. Hér er enn verið að mála og græja íbúðina og við búum enn í einu herbergi. Ekki það að við séum svosem óvön því!! En allur aukatími sem ég á fer í að reyna að nudda því verki áfram. Vinnan hér hefur tafist vegna þess að það hefur verið svo mikið um að vera á öðrum vígstöðvum. Giftingar og gönguferðir hafa verið þar á meðal. Við höfum stundað slíkt af kappi, fórum í sitt hvort brulllúppið 070707 og gengum svo hinn margumtalaða laugaveg um síðustu helgi. 59,3 km gengnir þá helgina og degi betur samkvæmt hinu nýja GPS tæki okkar


Við erum farin að skulda verulega myndbirtingar hérna frá Kanada og svo frá laugavegsgöngunni núna. Sem fyrr lofa ég engu - en þolinmæði þrautir vinnur.


En hér hafa það allir gott, vonandi er því eins farið hjá ykkur

- mundi | 23:07
Umræður

Sísý:

Ég tek ofan fyrir ykkur. Til lukku með að hafa lagt Laugaveginn að baki!! Hver er orkulindin ykkar? Get ég fengið uppskriftina?

(24.07.07 23:52)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni