júní 26, 2007

tn_DSC09937.JPG


Hér í Hamrahlíðinni er nú málað og málað. Enn er nóg eftir að gera hérna, en aldrei hefur þetta verið komið jafn langt og einmitt núna!! Af einmitt þeim sökum hef ég ekki enn komið mér í það að sortera myndir og gera þær nethæfar og lofa engu um hvenær það tekst. Skelli samt inn einni hérna til að sýnast.


Hamingjuóskir gærdagsins fara hins vegar til foreldra minna sem áttu 40 ára brúðkaupsafmæli. Ég heyrði frá þeim í hádeginu í gær þar sem þau snæddu silung á Nyhavn í góðu yfirlæti. Megið þið lengi lifa. Húrra, húrra, húrra, húrra.....

-mundi | 12:13 | Comments (2)

júní 25, 2007

tn_DSC00166.JPG

á föstudagsmorgun komum við heim úr fríinu okkar í Kanada. Það var verulega vel heppnað. Þar var tekið mikið af myndum og margt gert. Annaðhvort okkar segir kannski frá því hérna einn daginn, auk þess sem hér verða settar inn myndir frá ferðinni. - það er bara ekki alveg komið að því, nú er best að fara að mála smávegis.


kveð ykkur að sinni

-mundi | 09:19 | Comments (0)

júní 7, 2007

Kanada

Eftir langa seinkun á flugi er nú loks komið að því að við förum að rúlla til keflavíkur.

Á morgun vöknum við svo í Montréal og hefjum sumarfríið. Hafi'ða gott á meðan.

mundi over and out

-mundi | 21:44 | Comments (3)





Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni