Mánudagur 14. maí

Lífið eftir kosningar

Já það er spurning hvort það verði einhver breyting á Alþingi, þetta fór nú ekki alveg eins og ég var að vona þótt þetta hafi kannski verið pínu í áttina, en það var ekki nóg. En ég nenni ekki að vera með einhvern langan pistil um kosningarnar, þetta er búið og lífið heldur áfram.


Á laugardaginn fór ég í frábæra göngu upp á Heklu og renndi mér svo niður á þoturassi. Sumir voru enn metnaðarfyllri en ég og örkuðu upp með skíði og skíðaskó eða bretti og brettaskó. Hér eru myndir


Þegar heim var komið úr Hekluferðinni beið mín dýrindismáltíð à la Mundi og Guðni og eftir matinn var haldið í útskriftar/júróvisjón/kosnigapartý hjá Fanneyju. Það var æðislega gaman og lauk kvöldinu á kosningavöku VG á Sögu. Það er orðið ansi langt síðan ég fór síðast á djammið og ég mundi af hverju þegar ég vaknaði þunn á sunnudaginn. Mikið er nú ömurlegt að vera þunnur og þótt það sé alveg gaman að djamma þá tek ég ferð upp á hálendið alltaf fram yfir djamm í bænum. Og nú með hækkandi sól er markmiðið bara að fara helst út úr bænum allar helgar!

- Svanhildur | 14:14
Umræður

baddy:

þið eruð alltaf velkomin til mín á neskaupsstað í sumar, þið vitið neskaupsstaður sem stendur við norðfjörð...þú kannski útskýrir þetta fyrir munda ef þið ákveðið að skella ykkur...:)

(22.05.07 13:56)

Svanhildur:

Hahahahahah, já eins gott að Mundi verði með þetta á hreinu ef við kíkjum á þig :-)

(22.05.07 15:31)

mundi:

...er hann þar enn??? ;)

(22.05.07 17:12)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni