maí 30, 2007

Móskarðshnjúkar

tn_DSC09872.JPG


Í kvöld var gengið þangað...

-mundi | 22:18 | Comments (4)

tn_DSC09874.JPG

-mundi | 22:18 | Comments (0)

maí 28, 2007

Ég komst á tindinn

tn_DSC00120.JPG

-Svanhildur | 18:41 | Comments (2)

maí 25, 2007

Ferðalög og fjallgöngur

Enn sem komið er stend ég við það að fara út úr bænum hverja helgi, fór norður með vinnufélögunum síðustu helgi og í kvöld verður lagt af stað í Flubbaferð upp á Hvannadalshnjúk. Mikil tilhlökkun í gangi.


En það verður líklegast ekki hjá því komist að taka frí frá ferðalögum næstu helgi þar sem við fáum íbúðina afhenta á föstudaginn og þurfum að flytja á sunnudaginn, og svo er það bara KANADA næsta fimmtudag þar á eftir. Mikið er lífið skemmtilegt!

-Svanhildur | 13:36 | Comments (0)

maí 24, 2007

Ég er hægra heilahvelsmanneskja

...samkvæmt þessu prófi sem ég tók á netinu. Verð að viðurkenna að ég hélt einmitt að ég væri með virkara vinstra heilahvel, en þetta er þó allt bara gert í gamni og tek ég svo sem ekki mikið mark á þessu. En hér eru niðurstöðurnar mínar:


Svanhildur, you are Right-brained
Most right-brained people like you are flexible in many realms of their lives. Whether picking up on the nuances of musical concerto, appreciating the subtle details in a work of art, or seeing the world from a different perspective, right-brained people are creative, imaginative, and attuned to their surroundings.

People probably see your thinking process as boundless, and that might translate to your physical surroundings as well. Some people think of you as messier than others. It's not that you're disorganized, it's just that you might use different systems to organize (by theme, by subject, by color). Straight alphabetization and rigidly ordered folders are not typical of right-brained behavior.

You are also more intuitive than many. When it comes to reading literature, you probably prefer creative writing or fiction over nonfiction. And when it comes to doing math, you might find you enjoy geometry more than other forms like algebra.

-Svanhildur | 16:06 | Comments (1)

maí 23, 2007

Vífilsfell

tn_DSC09817.JPG


Að loknum vinnudegi er um að gera að skella sér á fellið. Leggja af stað í golu og sól, lenda í snjókomu og byl og taka því létt.


það var gert núna áðan


-mundi | 23:00 | Comments (0)

tn_DSC09814.JPG

-mundi | 22:59 | Comments (0)

maí 14, 2007

Lífið eftir kosningar

Já það er spurning hvort það verði einhver breyting á Alþingi, þetta fór nú ekki alveg eins og ég var að vona þótt þetta hafi kannski verið pínu í áttina, en það var ekki nóg. En ég nenni ekki að vera með einhvern langan pistil um kosningarnar, þetta er búið og lífið heldur áfram.


Á laugardaginn fór ég í frábæra göngu upp á Heklu og renndi mér svo niður á þoturassi. Sumir voru enn metnaðarfyllri en ég og örkuðu upp með skíði og skíðaskó eða bretti og brettaskó. Hér eru myndir


Þegar heim var komið úr Hekluferðinni beið mín dýrindismáltíð à la Mundi og Guðni og eftir matinn var haldið í útskriftar/júróvisjón/kosnigapartý hjá Fanneyju. Það var æðislega gaman og lauk kvöldinu á kosningavöku VG á Sögu. Það er orðið ansi langt síðan ég fór síðast á djammið og ég mundi af hverju þegar ég vaknaði þunn á sunnudaginn. Mikið er nú ömurlegt að vera þunnur og þótt það sé alveg gaman að djamma þá tek ég ferð upp á hálendið alltaf fram yfir djamm í bænum. Og nú með hækkandi sól er markmiðið bara að fara helst út úr bænum allar helgar!

-Svanhildur | 14:14 | Comments (3)

maí 6, 2007

tn_DSC09747.JPG

-mundi | 19:02 | Comments (5)





Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni