Miðvikudagur 18. apríl

Svo margt búið að gerast...

... síðan síðast og löngu komin tími á smá fréttir.


Við áttum frábært tíu daga páskafrí á Akureyri og í Mývatnssveit þar sem tímanum var eytt í að skemmta sér á svigskíðum, gönguskíðum, snjósleðum og jeppum. Þess á milli var farið í útilegu, 38km göngu kringum Mývatn, í leikhús, á tónleika, og í nokkur matarboð. Allt þetta var gert með góðum vinum og voru þetta alveg hreint frábærir dagar.


En það er líka margt búið að gerast hér í Reykjavíkinni. Frá og með 1. ágúst verð ég frönskukennari í MS í eitt ár og hlakka mikið til. Svo vorum við Mundi í gær að skrifa undir plögg sem gera okkur að eigendum 3ja herbergja íbúðar í Hamrahlíð 25, með bílskúr sem Mundi er svo glaður yfir að vera búinn að eignast. Allt þetta eigum við að fá afhent 1. júní.


Og eins og þetta sé ekki nóg, þá erum við líka á fullu að skipuleggja Kanadaferðina okkar sem ég hlakka svo mikið til.


Já það er gaman að lifa. Ég er svo að fara í flubbaferð um helgina en Mundi ætlar að reyna að vinna eitthvað fyrir öllum skuldunum sem við eignuðumst með íbúðinni.


Gleðilegt sumar á morgun!!!

- Svanhildur | 10:21
Umræður

Dagný:

til hamingju með íbúðina! :D

(18.04.07 15:37)

Sísý:

Til lukku með allt saman!!!

(18.04.07 17:05)

torfi:

Algott mál þetta - íbúðin í höfn og þá er nú allt meira og minna klárt... og ekki skemmir bílskúrinn fyrir. Það er mjög gott að hafa einn þannig heimvið, sumir segja nauðsynlegt :-).

Til lukku með að þetta sé klárt !!

(18.04.07 22:44)

baddy systir:

vá til hamingju með nýju íbúðina, gott að vita að þetta er 3ja herbergja;)

(21.04.07 22:06)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni