Föstudagur 23. mars

aktífi tíminn

það hefur verið mikið um að vera hjá okkur undanfarið. sem fyrr er ekkert atvinnuleysi hjá okkur en þar fyrir utan höfum við lifað ákaflega menningarlega síðan að pourquoi pas hátíðin byrjaði. við erum búin að sjá 2 alveg frábærar myndir í bíó, búin að fara og snæða 6 réttaða máltíð á Holtinu, fara á nokkra tónleika, leikhúsið skoðuðum við í gær og ég veit ekki hvað og hvað. þetta er búin að vera ákaflega aktífur tími og margt skemmtilegt að sjá og heyra.


einnig hefur farið mikill tími í það að kynna sér fasteignamarkaðinn hérna í borginni. en nú lítur út fyrir að það þurfi ekki að eyða meiri orku í það. við erum búin að negla íbúð hér í hlíðunum og það er bara eitt lítið ef í því máli.


þannig að ef að líkum lætur og allt gengur eftir, þá vantar okkur fólk í burð með vorinu. :)


góða helgi.

- mundi | 15:27
Umræður

Ziggy Flotti:

Til lukku ef þið neglið íbúðina, ótrúlega leiðinlegur fasi að vera að leita!!

(23.03.07 17:53)

Hildur Guðný:

Jeiei, ég fer að æfa mig fyrir flutningana bara strax í fyrramálið- til hamingju vonandi :)

(23.03.07 21:05)

Bjössi:

í sauðburð þá? til lukk með íbúðina ;)

(23.03.07 23:12)

Harpa:

Vonandi til hamingju og bara å besta stad ;)

(24.03.07 10:31)

sara hrund:

ég kem og hjálpa

(24.03.07 12:10)

Torfi:

.. til lukkunnar.

Ekki skemmir að það er bílskúr með :-).

(25.03.07 11:16)

Ásdís Jóh:

Ég vona að þið fáið íbúðina! Hlakka til að koma í heimsókn, kannski í sumar ;)

Bisous!

(25.03.07 13:06)

Jón Gunnar:

Æi ég nenni ekki að koma!

Jú, ég skal hjálpa til! :o) Bara miki miki grín.

Kveðja,

Jón Gunnar afmælisbarn.

(27.03.07 20:16)

Eiríkur:

Stöndum upp og klöppum fyrir parinu sem fór á marga tónleika, borðaði marga rétti á Holtinu og drakk margar vínflöskur með og keypti sér svo íbúð í Hlíðunum allt í sömu vikunni. Styttist í burð hjá fleirum! Sýnist að mér sé óhætt að bjóða fram hjálp mína þar sem ég verð kominn aftur á Kjálkann.

(28.03.07 10:08)

Torfi:

... halló halló - á ekki að hleypa inn ?

Næstum kominn mánuður og þið búin að fara norður (og niður) í millitíðinni. Nóg frá að segja og 170 myndir...

... það var sagt að það væri show

(18.04.07 08:30)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni