mars 23, 2007

aktífi tíminn

það hefur verið mikið um að vera hjá okkur undanfarið. sem fyrr er ekkert atvinnuleysi hjá okkur en þar fyrir utan höfum við lifað ákaflega menningarlega síðan að pourquoi pas hátíðin byrjaði. við erum búin að sjá 2 alveg frábærar myndir í bíó, búin að fara og snæða 6 réttaða máltíð á Holtinu, fara á nokkra tónleika, leikhúsið skoðuðum við í gær og ég veit ekki hvað og hvað. þetta er búin að vera ákaflega aktífur tími og margt skemmtilegt að sjá og heyra.


einnig hefur farið mikill tími í það að kynna sér fasteignamarkaðinn hérna í borginni. en nú lítur út fyrir að það þurfi ekki að eyða meiri orku í það. við erum búin að negla íbúð hér í hlíðunum og það er bara eitt lítið ef í því máli.


þannig að ef að líkum lætur og allt gengur eftir, þá vantar okkur fólk í burð með vorinu. :)


góða helgi.

-mundi | 15:27 | Comments (10)

mars 13, 2007

sá á kvölina sem er á mölinni

íbúðaskoðun, íbúðaskoðun, íbúðaskoðun. úff. veit ekki einhver bara um ódýra íbúð handa okkur sem er ekki á patró....

-mundi | 20:29 | Comments (3)

mars 5, 2007

Emilie Simon

tn_DSC09650.JPG


Hér var ég búinn að skrifa eitthvað áðan en einhvernveginn klúðraði ég málunum og eyddi því. mánudagur í dag og ég er heima með hita svo það er kannski eðlilegt bara.


Gleðilegast á helginni voru snilldartónleikar Emilie Simon í háskólabíó. ég er búinn að bíða eftir þessum tónleikum ansi lengi og þeir stóðust allar væntingar.


annars er ég bara allur að hressast held ég .


:-)

-mundi | 13:20 | Comments (8)





Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni