Miðvikudagur 7. febrúar

Útilegulíf

Ferðin til Ísafjarðar síðustu helgi var alveg frábær og vel heppnuð. Náðum að skíða alla dagana; gönguskíði á föstudeginum og svigskíði hina tvo dagana. Svo var ekki síður mikilvægt að skemmta sér í góðra vina hópi, borða góðan mat, drekka smá vín og spila Trivial. Þetta var sem sagt ein af þessum fullkomnu helgum og ég gerði mér grein fyrir því að maður gerir allt of lítið af því að skreppa á Vestfirðina, OK maður getur kannski varla talað um að "skreppa" í þessu sambandi, vorum 7,5 tíma hvora leið, en mikið er nú fallegt þarna og landslagið mikilfenglegt.


Næstu helgi er svo Flubbaferð hjá mér og er það fjórða helgin í röð sem ég fer út úr bænum. Alltaf nóg um að vera enda er lífið skemmtilegast þannig. Mundi verður í bænum að mála og sjá um Moggaútburð fyrir mig. Það er nú ekki alveg það skemmtilegasta sem hann veit en eftir þessa helgi fer nú að draga aðeins úr þessum útilegum mínum og ég get farið að vera duglegri í laugardagsútburðinum.


Annars er líka brjálað að gera í vinnunni að undirbúa frönsku hátíðina sem hefst 22. febrúar. Vil benda ykkur á spennandi tónleika laugardaginn 24. febrúar í Hafnarhúsinu (frítt inn) með franskri grúppu sem kallar sig Dionysos. Svo er heimasíðan líka alveg að verða tilbúin en það mun bætast fullt af efni inn á hana á næstu dögum: www.pourquoipas.is


Plönin um að komast í betra form ganga ágætlega. Er dugleg að hreyfa mig og er farin að borða aðeins hollari mat án þess að fara út í einhverjar öfgar. Er aðeins farin að finna fyrir meiri orku og buxnastrengurinn herðir ekki alveg eins mikið að og hann gerði. Þetta er því allt á réttri leið...

- Svanhildur | 11:21
Umræður

sara hrund:

mikið vildi ég óska að ég væri á leið í svona fallegt ferðalag.. snjór og skíði, gott veður og notalegheit. ég myndi ekki kvarta.. en jæja. góða helgi
knúsar

(09.02.07 18:10)

Hildur:

gott að heyra að hreyfingin og labbið gangi vel, var einmitt að spá i þessu og hvort við ættum ekki að breyta labbinu í morgun í esjugöngu eða annaðfjallgöngu.. finnum út úr því á morgun :)

(09.02.07 22:10)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni