Miðvikudagur 21. febrúar

Það er allt á suðupunkti í vinnunni enda opnun hátíðarinnar á morgun. Þótt ég hafi í rauninni ekki tíma til þess þá langaði mig til að henda hér inn nokkrum línum til að segja ykkur hversu gaman það er að fá að taka þátt í að skipuleggja þessa miklu hátíð, jafnvel þótt ég sé stundum alveg komin með nóg og langi bara heim í sófa og sofna út frá imbanum. Mig langaði líka að segja ykkur hvað mér finnst frábært hvað daginn er farið að lengja mikið, nóg hjólar maður bara í og úr vinnunni í björtu og ég er ekki frá því að þessi kærkomna birta lífgi upp á sálartetrið.

En ég hef ekki tíma til að skrifa meira, verð að fara að gera eitthvað að viti hérna í vinnunni, það bíða mín trilljón verkefni. Vonast til að sjá ykkur öll á Austurvelli annað kvöld kl. 20 og í Hafnarhúsinu á laugardagskvöldið kl. 22 á ókeypis tónleikum Dionysos.

- Svanhildur | 09:28
Umræður

Torfi:

... 1,2 og 3 og lagó

(21.02.07 17:08)

Torfi:

.. ég kemst í hátíðarskap :-)

(21.02.07 17:44)

sara hrund:

eru þetta ekki einhverjir Frakkar? Hver bauð þeim eiginlega hingað skilurru..

en hljómar spennandi annars, aldrei að vita nema maður láti virkilega sjá sig. ég var annars að pæla í þessu auglýsta eldorgeli... hvar var það eiginlega? var það inní eldkyndlunum sem þeir spiluðu ekki á eða? eða var það kannski í trommunum sem ekki voru í ljósum logum? skil ekki. en er ekkert fúl sko. í góðum málum jú sí. :)
áfram Frakkland og smá Ísland.

(23.02.07 16:00)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni