febrúar 25, 2007febrúar 21, 2007Það er allt á suðupunkti í vinnunni enda opnun hátíðarinnar á morgun. Þótt ég hafi í rauninni ekki tíma til þess þá langaði mig til að henda hér inn nokkrum línum til að segja ykkur hversu gaman það er að fá að taka þátt í að skipuleggja þessa miklu hátíð, jafnvel þótt ég sé stundum alveg komin með nóg og langi bara heim í sófa og sofna út frá imbanum. Mig langaði líka að segja ykkur hvað mér finnst frábært hvað daginn er farið að lengja mikið, nóg hjólar maður bara í og úr vinnunni í björtu og ég er ekki frá því að þessi kærkomna birta lífgi upp á sálartetrið. En ég hef ekki tíma til að skrifa meira, verð að fara að gera eitthvað að viti hérna í vinnunni, það bíða mín trilljón verkefni. Vonast til að sjá ykkur öll á Austurvelli annað kvöld kl. 20 og í Hafnarhúsinu á laugardagskvöldið kl. 22 á ókeypis tónleikum Dionysos.
-Svanhildur | 09:28
| Comments (3)
febrúar 18, 2007Reykjanes
-mundi | 18:23
| Comments (1)
febrúar 7, 2007ÚtilegulífFerðin til Ísafjarðar síðustu helgi var alveg frábær og vel heppnuð. Náðum að skíða alla dagana; gönguskíði á föstudeginum og svigskíði hina tvo dagana. Svo var ekki síður mikilvægt að skemmta sér í góðra vina hópi, borða góðan mat, drekka smá vín og spila Trivial. Þetta var sem sagt ein af þessum fullkomnu helgum og ég gerði mér grein fyrir því að maður gerir allt of lítið af því að skreppa á Vestfirðina, OK maður getur kannski varla talað um að "skreppa" í þessu sambandi, vorum 7,5 tíma hvora leið, en mikið er nú fallegt þarna og landslagið mikilfenglegt.
-Svanhildur | 11:21
| Comments (2)
|
![]() Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com Mundi/Svanhildur Hamrahlíð 25 105 Reykjavík ÍSLAND Heimasími: 00354-562 8074 Skype: mundi74@skype.com Mundi gsm 00354-899 2012 Svanhildur gsm 00354-869 2501 Fólkið
daia
baddý hanna torfi og eva óli helgi gauti harpa ásdís hildur og unnur jón gunnar sísý mall fanney raf-magni bogga heiða sara ástrós baldur björk jói ben snæbó daníel skíði aurelie berglind halldóra hlalla jói Solla og Gummi bjarni og bryndís gönguvefurinn nýliðahópur Nýlegar færslur
Gamalt efni
mars 2008
desember 2007 nóvember 2007 október 2007 september 2007 ágúst 2007 júlí 2007 júní 2007 maí 2007 apríl 2007 mars 2007 febrúar 2007 janúar 2007 desember 2006 nóvember 2006 október 2006 september 2006 ágúst 2006 júlí 2006 júní 2006 maí 2006 apríl 2006 mars 2006 febrúar 2006 janúar 2006 desember 2005 nóvember 2005 október 2005 september 2005 ágúst 2005 júlí 2005 júní 2005 maí 2005 apríl 2005 mars 2005 febrúar 2005 janúar 2005 desember 2004 nóvember 2004 október 2004 september 2004 ágúst 2004 júlí 2004 júní 2004 maí 2004 apríl 2004 mars 2004 febrúar 2004 janúar 2004 desember 2003 nóvember 2003 Nóvember 2003 (2) Október 2003 September 2003 Ágúst 2003 Júlí 2003 Júní 2003
Leita á síðunni
|