Mánudagur 15. janúar

Nýr bíll og ný skíði

já finnst ykkur ég ekki góð og samkvæm sjálfri mér að vera nýbúin að gagnrýna neyslusamfélagið og tilkynna svo að á heimilið séu bæði komin ný skíðii og nýr bíll?


En hann Volfgang gafst upp um daginn og var tekin sú ákvörðun að hætta að eyða í hann peningum og fjárfesta frekar í jeppa. Nú erum við Mundi orðnir eigendur að hvítum Galloper árgerð '98 á 33''. Munda finnst svo gaman að keyra þessa dagana að á laugardaginn skrapp hann á Sauðárkrók til að sækja svigskíðin okkar sem voru í geymslu hjá ömmu Boggu. Planið var nefnilega að fara í Bláfjöll á sunnudeginum en það plan gekk nú ekki alveg eftir.


Á meðan Mundi keyrði norður og suður aftur fór ég í jómfrúarferð á nýju gönguskíðin sem ég fékk í jólagjöf frá mínum heittelskaða. Þetta gekk vonum framar ogvar svaka gaman. Ég var nú bara nokkuð stolt af mér að ná svona nokkurnvegin að halda í við pabba þar sem við brunuðum í yndislegu veðri milli trjánna í Heiðmörkinni. Á laugardagskvöldið fór ég svo í flubbapartý þar sem haldið var upp á að fjáröflunartímabilinu var lokið og að það hefði gengið vel. Þetta var hið fínasta partý þar sem meðal annars var boðið upp á grillaða Langreyð og komst ég að því að Langreyðin er veislumatur.


Þar sem ekkert varð úr skíðaferð í gær var deginum að mestu eytt í að liggja í leti og alltaf gott að taka svoleiðis daga inn á milli. Annars er ég nú búin að fjárfesta í árskorti í Baðhúsið og ætla að reyna að fara alltaf eftir vinnu. Nú skal ég sko koma mér í form og ég trúi bara ekki öðru en að það takist núna. Ég ber út Moggann 7 sinnum í viku, fer í erfiðar flubbaferðir aðra hverja helgi og svo í ræktina 5 sinnum í viku. Ef ég reyni líka að passa aðeins upp á mataræðið þá hlýtur þetta að vera nóg.

- Svanhildur | 10:57
Umræður

benoit:

Je ne comprend pas l'islandais :-)

(15.01.07 11:24)

Svanhildur:

Désolé Benoit mais il faut juste que tu l'apprenne. Entre temps tu peux demander à Ásdís de te traduire.

(15.01.07 11:32)

Torfi:

til lukku með nýja jeppann... ;-)

(15.01.07 15:47)

benoit:

oui je sais il faut que j'apprenne l'islandais ;-).
Mais j'ai deja commencé avec un livre : eg heiti benoit!!
til hamingu með billin!!
j'ai encore des progres a faire mais j'apprends vite.
bæ bæ

(15.01.07 17:51)

Heiða í Sviss:

djö harka í þér stelpa!!!! TIl hamingju með nýja jeppann:)

(15.01.07 20:09)

fanney:

blessuð sé minning hans....

man eftir honum þegar hann var ungur og nýr... montið sem skein úr augum þáverandi eigenda var mikið og greinilegt að um góða bifreið væri að ræða. Hann hefur nú þjónað sínum tilgangi (eins og sést á klumpnum sem hann hefur borið á toppnum síðastliðin ár).

Til hamingju með skíðin, jeppann og nýjárið...

kveðja úr sveitinni

(16.01.07 12:10)

Björk:

þvílíkur dugnaður í þér stelpa. Efast nú ekki um að þú komist í form... ekki annað hægt þegar prógrammið er svona:)

(02.02.07 11:21)

Ziggy Flotti:

Til lukku með jappann, gott framtakt

(19.02.07 10:49)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni