Miðvikudagur 31. janúar

Mikil vonbrigði...

...voru það að tapa leiknum í gær. En mikið er ég nú samt stolt af liðinu, þeir eru búnir að standa sig alveg svakalega vel og maður getur ekki verið annað en sáttur, þótt maður sé auðvitað svaka svekktur.


Hið sama á við um snjóleysið á Ísafirði. Loksins þegar búið er að drífa í því að ákveða að skella sér vestur á skíði og fá frí í vinnunni og allt, þá fer allur snjórinn fyrir vestan. Maður er því pínu vonsvikinn en þó fullur tilhlökkunar að skella sér vestur og heimsækja góða vini. Það verður þá bara gert eitthvað annað skemmtilegt en að fara á skíði.

- Svanhildur | 14:28
Umræður

Ziggy Flotti:

Ef þið takið nóg af Stroh skiptir engu máli hvort það er snjór eða ekki (og þá í raun betra að hafa engann snjó) :-)

(03.02.07 18:12)

fanney:

.. já mikil vonbrigði að tapa leiknum en voðalega hefur íslenska þjóðin mildast í umræðunni um "strákana okkar" því fyrir stuttu eftir tap þá voru þetta helv... aumingjar... en núna eru þeir alltaf "strákarnir okkar" hvernig sem gengur hehe... fyndið hvernig allt breytist. Það var gert grín að þessu í spaugstofunni fyrir hálfum mán, minnir mig, mjög fyndið.

Vonandi verður gaman fyrir vestan þó svo að þið farið ekki á skíði...
góða ferð

kv. Fanney

(05.02.07 14:57)

Svanhildur:

Oh já það var sko alveg æðislegt fyrir vestan og við komumst nú bara á skíði alla dagana: fórum á gönguskíði á föstudaginn en svo komumst við á svigskíði bæði á laugardaginn og í gær. Alveg frábært færi og svaka gaman.

Takk fyrir okkur Eiríkur og Helga

(05.02.07 15:20)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni