Mánudagur 15. janúar

Volfgang in memoriam

tn_DSC09402.JPG


Eftir margra margra ára dygga þjónustu í þágu fjölskyldunnar ákvað hann Volfgang okkar að segja sig úr þjónustu við okkur á fermingarári sínu. Við þökkum honum ástsamlega fyrir að bera okkur og búslóðir, heil á húfi og vandræðalítið, heimsálfuna margar ferðir enda á milli.


Ekki var að spyrja að þeim góða bíl að ekki brást hann þegar á reyndi, þó svo hann kræfist aðhlynningar af og til öðrum stundum. Margar góðar minningar eignuðumst við úr ferðalögunum með Volfgang þar sem hann var oft á tíðum hrókur alls fagnaðar. Ekki þurfti hann sjúss til að komast í gírinn og smurolíu leit hann ekki við. Aldrei var hann heldur í vandræðum með að fara fram úr, þó svo fullur væri, en það átti hann til að verða þegar eigendurnir viðruðu búslóðina. Fjörið og stemmingin var iðulega þar sem hann fór. Blessuð sé minning þín Volfgang, við munum aldrei gleyma þér, og við vitum að þér mun líða vel í nýjum heimkynnum þar sem margir Volvoar eru fyrir. Þakkir skaltu hafa.


Deyr fé
deyja frændur
sé á þá ekið.


En hér að ofan gefur hins vegar að líta arftaka Volfgangs, Galdrahopparann ógurlega. Mun ekki hafa sést fjarskafagurri vagn á stóru svæði. Þið sem mætið honum - vinkið!

- mundi | 22:21
Umræður

jons:

Jáh! Til hamingju með nýja bílinn. Gott að Volfgang fékk gott heimili, hann er aldeilis búinn að standa sig!

(16.01.07 08:28)

Torfi:

flottur....

.... gríðarflottur og megi hann endast ykkur eigi síður en sá síðasti :-).

12 stig

(17.01.07 10:41)

Lauga:

Flottur

Þá er bara að bruna á besta skíðasvæði á landinu
lítið um rafmagnsl. þar
Gisting og fæði í boði frænku

(22.01.07 13:44)

Lauga:

Flottur

Nú er bara að koma á besta skíðasv. á landinu
lítið um rafmagnsl. þar (allavega ekki að völdum tækjabíls frá RÚV)
Fæði og húsn. í boði

(22.01.07 13:52)

mundi:

já maður ætti nú bara að drífa sig.

(23.01.07 07:49)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni