janúar 31, 2007
Mikil vonbrigði...
...voru það að tapa leiknum í gær. En mikið er ég nú samt stolt af liðinu, þeir eru búnir að standa sig alveg svakalega vel og maður getur ekki verið annað en sáttur, þótt maður sé auðvitað svaka svekktur.
Hið sama á við um snjóleysið á Ísafirði. Loksins þegar búið er að drífa í því að ákveða að skella sér vestur á skíði og fá frí í vinnunni og allt, þá fer allur snjórinn fyrir vestan. Maður er því pínu vonsvikinn en þó fullur tilhlökkunar að skella sér vestur og heimsækja góða vini. Það verður þá bara gert eitthvað annað skemmtilegt en að fara á skíði.
-Svanhildur
| 14:28
| Comments (3)
janúar 22, 2007
Helgin að baki
Já maður er búinn að vera ansi duglegur þessa helgi. Við Mundi byrjuðum helgina á því að skella okkur upp í Bláfjöll eftir vinnu á föstudag en þeir sem hafa eitthvað fylgst með fréttum vita nú hvernig sú ferð endaði. Við náðum ekki að fara eina einustu ferð en vorum þó búin að bíða í biðröðum í klukkutíma þegar rafmagnið fór. En öll leiðindamál hafa nú einhverjar bjartar hliðar og ég er nú bara ánægð með að hafa ekki verið komin í stólalyftuna þegar rafmagnið fór. Öfundaði ekki þá sem þurftu að bíða í lyftunni í skítakulda.
Eftir blaðaútburð á laugardagsmorguninn hélt ég af stað ásamt nýliðahópum Flugbjörgunarseitarinnar til Þingvalla þar sem hefja átti 50 km. tveggja daga skíðagöngu. Eitthvað var nú minna af snjó en menn bjuggust við og sóttist okkur ferðin hægt á laugardeginum, þar sem við þurftum að halda á skíðunum megnið af deginum. Það var því ákveðið að breyta aðeins út af áætluninni og stytta leiðina niður í 36 km, sem var nú satt best að segja alveg nóg fyrir mig, ég er alveg að drepast úr harðsperrum og hælsærum og geng um eins og sjötugt gamalmenni. En þótt þetta hafi verið erfitt þá er þetta alltaf gaman eftirá og það var nú líka bara gaman að sofa í tjaldi í snjó og frosti og prufa búnaðinn sem hélt svona næstum því á mér hita um nóttina.
Á meðan þessu stóð var Mundi í bænum og brallaði ýmislegt skemmtilegt eins og t.d. að fara aftur á skíði í Bláfjöllum í gær. Það gekk betur í þetta skiptið og hann komst nokkrar ferðir en tjáði mér þó að það mætti nú vera meiri snjór.
Eftir allt þetta erfiði er planið að fara heim beint eftir vinnu og leggjast í sófann, horfa á leikinn og verða ekki svekkt þótt við töðum og slappa vel af.
P.S. Einhverjir hafa verið að kvarta yfir því að það vanti inn myndir úr flubbaferðum hingað inn en ég verð að viðurkenna að ég hef ekki enn tekið með mér myndavél í þessar ferðir, einfaldlega vegna þess að ég er í svo lélegu formi að ég hef engan tíma til að vera að stoppa og taka myndir ef ég ætla ekki að missa af restinni af hópnum. Nokkrir göngugarpar hafa þó verið með myndavélar með sér í ferðum og hafa sett nokkrar myndir inn á þessa síðu. Vonandi eiga eftir að koma einhverjar myndir af ferð helgarinnar þarna inn.
-Svanhildur
| 11:46
| Comments (3)
janúar 17, 2007
Hún á afmælií dag
húna á ammælí dag
húná ammli ún Svanhildur
hún á afmælíííííí dag
janúar 15, 2007
Volfgang in memoriam

Eftir margra margra ára dygga þjónustu í þágu fjölskyldunnar ákvað hann Volfgang okkar að segja sig úr þjónustu við okkur á fermingarári sínu. Við þökkum honum ástsamlega fyrir að bera okkur og búslóðir, heil á húfi og vandræðalítið, heimsálfuna margar ferðir enda á milli.
Ekki var að spyrja að þeim góða bíl að ekki brást hann þegar á reyndi, þó svo hann kræfist aðhlynningar af og til öðrum stundum. Margar góðar minningar eignuðumst við úr ferðalögunum með Volfgang þar sem hann var oft á tíðum hrókur alls fagnaðar. Ekki þurfti hann sjúss til að komast í gírinn og smurolíu leit hann ekki við. Aldrei var hann heldur í vandræðum með að fara fram úr, þó svo fullur væri, en það átti hann til að verða þegar eigendurnir viðruðu búslóðina. Fjörið og stemmingin var iðulega þar sem hann fór. Blessuð sé minning þín Volfgang, við munum aldrei gleyma þér, og við vitum að þér mun líða vel í nýjum heimkynnum þar sem margir Volvoar eru fyrir. Þakkir skaltu hafa.
Deyr fé
deyja frændur
sé á þá ekið.
En hér að ofan gefur hins vegar að líta arftaka Volfgangs, Galdrahopparann ógurlega. Mun ekki hafa sést fjarskafagurri vagn á stóru svæði. Þið sem mætið honum - vinkið!
Nýr bíll og ný skíði
já finnst ykkur ég ekki góð og samkvæm sjálfri mér að vera nýbúin að gagnrýna neyslusamfélagið og tilkynna svo að á heimilið séu bæði komin ný skíðii og nýr bíll?
En hann Volfgang gafst upp um daginn og var tekin sú ákvörðun að hætta að eyða í hann peningum og fjárfesta frekar í jeppa. Nú erum við Mundi orðnir eigendur að hvítum Galloper árgerð '98 á 33''. Munda finnst svo gaman að keyra þessa dagana að á laugardaginn skrapp hann á Sauðárkrók til að sækja svigskíðin okkar sem voru í geymslu hjá ömmu Boggu. Planið var nefnilega að fara í Bláfjöll á sunnudeginum en það plan gekk nú ekki alveg eftir.
Á meðan Mundi keyrði norður og suður aftur fór ég í jómfrúarferð á nýju gönguskíðin sem ég fékk í jólagjöf frá mínum heittelskaða. Þetta gekk vonum framar ogvar svaka gaman. Ég var nú bara nokkuð stolt af mér að ná svona nokkurnvegin að halda í við pabba þar sem við brunuðum í yndislegu veðri milli trjánna í Heiðmörkinni. Á laugardagskvöldið fór ég svo í flubbapartý þar sem haldið var upp á að fjáröflunartímabilinu var lokið og að það hefði gengið vel. Þetta var hið fínasta partý þar sem meðal annars var boðið upp á grillaða Langreyð og komst ég að því að Langreyðin er veislumatur.
Þar sem ekkert varð úr skíðaferð í gær var deginum að mestu eytt í að liggja í leti og alltaf gott að taka svoleiðis daga inn á milli. Annars er ég nú búin að fjárfesta í árskorti í Baðhúsið og ætla að reyna að fara alltaf eftir vinnu. Nú skal ég sko koma mér í form og ég trúi bara ekki öðru en að það takist núna. Ég ber út Moggann 7 sinnum í viku, fer í erfiðar flubbaferðir aðra hverja helgi og svo í ræktina 5 sinnum í viku. Ef ég reyni líka að passa aðeins upp á mataræðið þá hlýtur þetta að vera nóg.
-Svanhildur
| 10:57
| Comments (8)
janúar 3, 2007
Neyslusamfélagið og nýja árið
Þetta er kannski eitthvað sem maður ætti að hugsa út í svona rétt eftir neyslubrjálæðið um jólin.
Annars vil ég óska ykkur öllum gleðilegs árs og þakka allar góðu stundirnar á liðnum árum.
-Svanhildur
| 10:48
| Comments (3)