Miðvikudagur 27. desember

Milli jóla og nýárs

Er ekki að nenna að vera í vinnunni núna, skil ekkert í mér að hafa ekki tekið frí á milli jóla og nýárs, fannst að þessir tveir dagar (jóladagur og 2. í jólum) væru alveg nóg en það er bara ekki þannig. Ætla að taka frí á næsta ári á milli jóla og nýárs, það er alveg á hreinu. Er sko alls ekkert úthvíld eftir þetta frí heldur drulluþreytt enda með einhverja helv... kvefpesti og búin að snúa sólarhringnum svolíitið við. En til að hætta að vera svona neikvæð þá vil ég nú fá að sejga ykkur að ég átti alveg yndisleg jól með góðum mat og pökkum og frábærum samverustundum með fjölskyldunni. Mundi er hins vegar búinn að liggja í flensu yfir jólin en náði passlega bata til að geta mætt í vinnu í morgun.


En eitt af því sem maður gerir á milli jóla og nýárs er að kaupa flugelda og minni ég á flugeldasölu flugbjörgunarsveitarinnar í húsi sveitarinnar við flugvallarveg og í húsi B&L við Grjótháls.

- Svanhildur | 14:18
Umræður

mundi:

hvað borga flubbarinir fyrir auglýsingar á reykjalin.com?? :) :)

(27.12.06 15:21)

mundi:

flugeldar komnir í hús... ;) þá er bara að bíða

(28.12.06 20:04)

Björk:

Svanhildur, hvar eru flubbagarpamyndir af þér á myndasíðunni?!
Já það er ekki gaman að vinna á milli jóla og nýárs, einn af kostunum við það að vera í skóla;)

(29.12.06 16:01)




Hafðu samband
mundi74 @ hotmail.com
svanhildur80 @ hotmail.com

Mundi/Svanhildur
Hamrahlíð 25
105 Reykjavík
ÍSLAND

Heimasími:
00354-562 8074
Skype:
mundi74@skype.com
Mundi gsm
00354-899 2012
Svanhildur gsm
00354-869 2501
Fólkið
Nýlegar færslur
Gamalt efni
Leita á síðunni